Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 2776
Gestir í dag: 379
Flettingar í gær: 12415
Gestir í gær: 319
Samtals flettingar: 948278
Samtals gestir: 51104
Tölur uppfærðar: 8.5.2024 21:24:26

Færslur: 2021 Október

16.10.2021 20:41

Sara og Sólveig


Strákarnir með lömbin sín, Söru og Sólveigu

Dalur og Flís eru að flýta sér að stækka

Sara og Sólveig eru byrjaðar að éta hey og ætla líka að flýta sér að stækka

Það kom smá snjóföl í nótt

Heysala

Ég tók yfirlitsflug í dag






Molinn kveður


15.10.2021 19:25

Kindur


Sara og Sólveig eru orðnar svo gæfar og þær dafna vel

Við Alexander fórum að gefa kindunum brauð. Þetta er svo yndislegt. Brauðpoki hristur og allar koma til okkar

Sonik og Alexander eru miklir vinir

Knús

Flottir vinir


16-571 Þyrill


18-591 Viti


20-603 Sagosen


20-607 Dúi


Þeim finnst gott að liggja á þessum hól. Það eru alltaf kindur þarna þegar ég flýg yfir

Og já yfirlitsflug í dag





Molinn kveður


14.10.2021 18:56

Flug flesta daga


Staðarhnjúkur í morgun

Ég tók smá flug í dag eins og flesta daga

Yfirlitsflug

Kominn haustlitur á trén

Flottur haustlitur

Möðruvallakirkja

Haustlitur á trjánum við Möðruvallakirkju

Flottir litir


Við skruppum á Krókinn til að ná í kjöt. Við fengum mjög gott veður

Það var verið að heyja á tveim bæjum í Skagafirði


Strákarnir að heilsa upp á Sólveigu og Söru

Þær eru orðnar svo gæfar. Þeim finnst gott að láta klappa sér


Útsýnið úr stofuglugganum núna seinnipartinn



Veit einhver hvar hægt er að fá svona bol? Mig langar mjög mikið í hann 
??????





Molinn kveður


13.10.2021 21:05

Litlu krúttin


Litlu krúttin, Sara og Sólveig, að leika sér

Sara á bakinu á mömmu sinni

Sólveig öfundar hana


18-393 Klanka


19-452 Óra


18-593 Hamar





Molinn kveður


12.10.2021 19:00

Vigtartölur


19-597 Ótti  (sennilega okkar besti hrútur)


295 lömbum, sem fóru í gær, var slátrað í dag (12. október)
Meðal fallþungi var 18,2 kg
Gerðin 10,3
Fitan 7,66

Við vorum búin að slátra 238 lömbum (21. september)
Meðal fallþungi 20,5
Gerðin 10,90
Fitan 7,8

Alls eru þetta 533 lömb, og meðaltalið er
Meðal fallþungi 19,2
Gerðin 10,56
Fitan 7,71



Fallegt veður í morgun



Það var héla yfir öllu í morgun


Möðruvellir 1 og 2


Flaug yfirlitsflug yfir kindurnar í morgun


Möðruvellir 3, 4 og 5





Molinn kveður


11.10.2021 22:30

Fallegt veður


Það var hélað í fjallinu í morgun. Veðrið er búið að vera gott í dag


20-496 Fnjósk var tvílembd og gekk með þau bæði. Það voru hrútar og vigtuðu þeir 44 kg. hvor. Svakalega flottur gemlingur


20-506 Marey skilaði líka flottum lömbum. Hún var tvílembd og gekk með þau bæði. Það voru hrútar og voru þeir 43 og 39 kg

Svakalega flottar


Dúdda með Sólveigu og Söru





Molinn kveður


10.10.2021 22:40

Sauðburður í október


Í gær þegar við vorum að fara yfir ærnar, þá átti þessi ær að fá lit fyrir sláturfé (rauðan) Hún var geld í vor og átti þess vegna ekki að fá líf. Ég tók undir hana og fann að það var komið mikið júgur. Ég hélt samt að hún mundi ekki bera fyrr en eftir viku til hálfan mánuð. Í morgun þegar við fórum í fjárhúsin, þá var hún að bera. Það var bara haus sem kom og hann var orðinn bólginn og kaldur, en lambið á lífi. Ég komst inn með hálsinum og náði öðrum fætinum og tók það þannig út. Við vorum smá tíma að koma því af stað, en það tókst. Ég þurfti að ná í hitt lambið, því hausinn lá niður með. Það tókst vel og þeim heilsast vel. Tvær gimbrar hjá 15-272 Dúddu





Flottar gimbrar

Við vigtuðum lömbin. Við sendum í sláturhús á morgun





Molinn kveður


09.10.2021 21:09

Kindur


Við fórum yfir ærnar í dag. Það stefnir í að heimturnar séu góðar

Hér koma nokkrar myndir

20-500 Muska undan 14-159 Möðru og 16-827 Mínus

20-514 Dendý undan 17-357 Dimitríu og 19-600 Gunnsa

20-505 Læka undan 15-249 Lufsu og 16-825 Glám

20-520 Alfa undan 17-341 Akafíu og 19-600 Gunnsa

20-513 Tóta undan 16-307 Trjónu og 18-591 Vita

20-515 Rúbý undan 18-402 Rikku og 19-596 Inda

20-504 Myrja undan 15-625 Móskrípu og 16-825 Glám

20-491 Santína undan 17-311 Selju og 16-820 Vidda

20-507 Logey undan 13-121 Ljúfu og 19-597 Ótta

20-498 Hrifla undan 14-140 Hríslu og 17-831 Amor

20-497 Helma undan 14-140 Hríslu og 17-831 Amor

20-523 Þyrý undan 12-065 Þilju og 19-597 Ótta

19-447 Mús undan 14-175 Mánadís og 18-591 Vita

Styttist í að þær verði teknar á hús





Molinn kveður


08.10.2021 18:03

Fallegt veður


Útsýnið í morgun var fallegt emoticon

Týri að sóla sig

Á morgun kemur í ljós hvað okkur vantar margar ær. Við ætlum að skrá niður hverjar eru komnar og athuga með júgur á þeim

Á sunnudaginn vigtum við lömbin





Molinn kveður


07.10.2021 19:20

Laus við spelkuna


Í dag er mánuður síðan ég meiddi mig á puttanum. Ég fór í skoðun og nú er ég laus við spelkuna. Ég held að ég sakni hennar smá

Puttinn lítur svakalega vel út. Allt á réttri leið emoticon Eini sársaukinn er að beygja hann. Ég þarf að þjálfa hann upp, því í spelkunni var puttinn beinn og ég gat ekki beygt hann. Ég held að ég verði fljót að ná mér emoticon


Knúsa, Sóldís og Sólrún hafa það gott inni. Þær eru ekki á leiðinn út



Litlu stubbarnir eru duglegir að borða. Ég held að þeim finnist bara gott að vera inni


Yfirlitsflug. Ekki veitir af. Ég hef séð lömb fara afvelta við það að klóra sér. Sum þeirra ná sér sjálf á fætur, en sum ekki og þá er gott að fljúga yfir





Molinn kveður


06.10.2021 18:40

Flug

Flugið tekið á hverjum degi, ef veður leyfir

Fyrst þegar ég var að fljúga yfir kindurnar, þá tóku þær á sprett. Núna hinsvegar eru þær ekki að kippa sér upp við drónann. Eru bara í rólegheitum að bíta

Forystufé

Þessar voru upp á fjallstúni

Yfirlitsflug

Það er kominn haust litur á trén

Möðruvellir 3





Molinn kveður


05.10.2021 21:01

Daglegt flug


Ég reyni að fljúga einu sinni á dag og athuga með féð. Sjá hvort allt sé ekki í lagi

Staðarhnjúkur og Staðarskarð

Og auðvitað þessi mynd





Molinn kveður


04.10.2021 19:18

Litlu lömbin


Dalur litli er sáttur að vera kominn inn

Flís er líka ánægð að vera komin inn

Dalur byrjaður strax að borða brauð

Þessar eru búnar að vera á einhverju flakki. Við sóttum þær í dag. Knúsa, Sóldís og Sólrún

Yfirlitsflug í dag

Snjórinn farinn. Haustrigningar byrjaðar





Molinn kveður


03.10.2021 20:14

Flottar ær

Nokkrar ær, af mörgum, sem gerðu það gott

13-121 Ljúfa var einlembd. Við vöndum undir hana. Hún skilaði 49 og 59 kg. lömbum af fjalli


14-254 Skoppa var þrílembd, en gekk með tvö lömb. Þau voru bæði 50 kg. af fjalli. Þriðja lambið var vanið undir 18-402 Rikku og það var líka 50 kg


15-245 Mosa var tvílembd og hún skilaði 50 og 54 kg. lömbum af fjalli


16-291 Rakel var tvílembd og skilaði 51 og 52 kg. lömbum af fjalli


18-399 Melóna var tvílembd og bæði lömbin voru 52 kg. af fjalli

Það eru mun fleiri ær sem skiluðu flottum lömbum





Molinn kveður


02.10.2021 20:40

Litli hrússi


Við settum þetta krútt inn í dag, ásamt mömmunni. Nú þarf hann ekki að þola meiri rigningu og snjókomu. Við ætlum að setja hitt litla lambið inn á morgun. Byrjuð að hýsa emoticon





Molinn kveður




clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

7 mánuði

24 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

9 ár

9 mánuði

27 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

3 mánuði

25 daga

Tenglar