Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 890
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 4728
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 2659300
Samtals gestir: 92110
Tölur uppfærðar: 19.10.2025 04:12:24

27.03.2008 19:46

ÞAÐ ER AÐ KVIKNA Í, ÞAÐ ER AÐ BRENNA Í

Já hver man ekki eftir þessu úr  Föstum liðum eins og venjulega: það er að kvikna í , það er að brenna í ??????  Þetta var sungið á mínu heimili áðan. Já ég var búin að kveikja á grillinu og var að bíða eftir því að það væri orðið nógu heitt til að geta farið að grilla.  Þá var dinglað og ég fór til dyra. Úti var maður í næsta húsi (Halldór) og hann sagði það er kviknað í grillinu. Ég sagði ég er að fara að grilla og ég var að kveikja á því. Þá sagði hann já en það ríkur úr því.  Ég sagði já það gerir það alltaf. Þá sagði hann það er eldur, það er kviknað í grillinu. Ég sagði já það kemur stundum smá eldur. Þá sagði hann JÁ EN ÞAÐ ER KVIKNAÐ Í GRILLINU.  Ég fór þá að gá út á pall og sá þá að grillið var í björtu báli. Og í því kemur annar nágranni minn að, (Hjalti) og sagði er að kvikna í hjá þér.  Ég sagði það lítur út fyrir það. Sótið og reykurinn af því náði upp í gluggana á efri hæðinni. Ég skrúfaði bara fyrir gasið og smátt og smátt fór eldurinn að gefa sig. Það hlítur eitthvað að hafa staðið á sér stillingarhnappurinn. Ég tók þá bara næsta grill hér út á palli og kveikti á því. Guðrún Helga á það . Ég grillaði bara á því og við borðuðum dýrindis máltíð. Já hvort grillið er ónýtt verð ég bara að komast að næst þegar ég fer að grilla.

Molinn kveður.


clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

14 ár

1 mánuð

5 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

11 ár

3 mánuði

7 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

3 ár

9 mánuði

5 daga

Tenglar

Eldra efni