Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1589
Gestir í dag: 89
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1158591
Samtals gestir: 63399
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 10:06:54

Færslur: 2014 Nóvember

27.11.2014 19:14

Nafnspjöld

Hér prýða kindurnar okkar eldhúsvegginn og hlöðuhurðina. já ég er nú loksins búin að endurnýja nafnspjöldin síðan í fyrra og nú af öllum 243 kindunum í fjárhúsunum.  (Voru 170 í fyrra)


Ég er með 36 kindur á hverju A3 blaði. Þetta er mynd 1


Mynd 2


Mynd 3


Mynd 4


Mynd 5


Mynd 6


Mynd 7  Hrútarnir reka lestina.


Hér eru svo meiri upplýsingar um hverja kind. Ég er með lit fyrir hvern árgang.


Eldhúsveggurinn hjá okkur


Eldhúsveggurinn hjá okkur. Ég er frekar montin með þetta emoticon


Molinn kveður




26.11.2014 12:35

Tilhleyping hafin

Ég er byrjuð að fara með Eros í kindurnar, til að sjá hverjar eru að ganga. Hann ætlar að vera auðveldur eins og faðir hans, Radix. 

Ég teymi hann í spotta innan um kindurnar. Hann er ljúfur sem lamb, eins og Radix.
Tilhleyping er hafin hjá okkur emoticon  Við fórum með tvær ær, Grímu og Ponsu undir Ebita félagshrút, sem er hjá Önnu Guðrúnu Fornhaga 2, í gær.  Við ætlum að nota hann á nokkrar ær. 

Ég hélt Flekku, í morgun, undir Drísil. Ég bara varð emoticon

Þetta er Drýsill.

Það voru margar að ganga í morgun, en við erum ekki að hleypa til þeirra. Við ætlum bara að velja nokkrar undir Ebita. Ég stalst bara til að hleypa til Flekku emoticon
Við eigum þá von á lömbum 17. apríl, og kannski tveim dögum fyrr, því þær ganga styttra með.

Nú fer að líða að kindanafnspjöldunum. Þau eru tilbúin til prentunar. Við prentum þau líklegast út í kvöld. Ég er búin að taka myndir af 243 kindum og raða þeim á spjöldin. Ég ætla að skreyta eldhúsvegginn með þeim eins og ég gerði síðast emoticon  Svo verða þau líka á hlöðu hurðinni í fjárhúsunum. 


Molinn kveður



20.11.2014 08:24

Líf og fjör í sveitinni

Jæja, þá er komið að því að skrifa eitthvað hér inn.

Við tókum ærnar á hús 20. október.

Þær voru nú frekar ánægðar með okkur, því veðrið var ekki gott.

Tommi á Syðri-Reistará kom og klippti fyrir okkur ærnar, 23. október. Hann rúði þær allar á einum degi.

Helga Gunnarsdóttir, dýralæknir sprautaði lömbin gegn garnaveiki, 2. nóv.

Ásetningurinn okkar í vetur eru:
10 hrútar, átta lambhrútar og tveir eldri.
50 gimbrar
37 veturgamlar
52 tveggjavetra
84 eldri en tveggjavetra
4 smálömb, hrútar sem við erum búin að láta gelda. 
Svo erum við með 6 gimbrar, sem Sr. Oddur Bjarni á 
Þannig að það eru 243 hausar. 

Við erum líka með 6 kálfa, tvo árs gamla, tvo fædda í júlí og tvo fædda í september. Við erum enn að gefa þessum tveim yngstu mjólk. Þeir verða á mjólk þangað til um miðjan des. Þá verð ég búin að gefa kálfum mjólk kvölds og morgna samfelt í 5 mánuði.

Hænurnar eru 7 og svo eru 9 ungar sem eru alveg að fara að detta í varp. Við erum með 3 hana. Við eigum eftir að sjá hvaða hani er flottastur áður en við fækkum þeim.


Það er búið að vera líf og fjör hjá okkur. Þessir gullmolar komu 12. nóv. og voru í viku, ásamt móður sinni, Guðrúnu Helgu. Þau fóru í gær. Núna er frekar tómlegt á Möðruvöllum 3.


Þeir hjálpuðu mér í gegningum á morgnana. Huginn eins árs, Einar Breki þriggja ára og Haukur Nói fjögurra mánaða.


Hér eru farartækin þeirra. Einar Breki er orðinn svo duglegur að keyra þennan rafmagnsbíl. Hann spændi nokkrar ferðir á dag upp í fjárhús á honum. Hér eru þeir Huginn, Einar Breki og Haukur Nói.

Jæja nú fer að líða að tilhleypingu. Þessi frábæri hrútur er kominn á sæðingastöðina  

Þetta er Radix frá okkur. Mikið sem ég sakna hans. 


Radix. Mynd sem er tekin 22. september 2012



Molinn kveður


07.11.2014 11:05

Mokað út úr fjárhúsunum

Simmi kláraði að moka út úr fjárhúsunum 19. október. Ég læt hér fylgja myndir frá því.


Við vorum með duglegan vinnumann með okkur. Hér er Bjössi að hjálpa Þórði að taka upp grindurnar, þannig að hægt verði að moka út.


Bjössi, svo duglegur að hjálpa til eins og alltaf emoticon


Hann var ekki smeykur við skítinn


Hér er Simmi byrjaður að moka út


Búinn að fylla skítadreifarann


Svo þurfti hann að tengja dreifarann við vélina


Kominn út á tún


Og byrjaður að dreifa skítnum. 
Hann þurfti að endurtaka þetta þar til allt var búið.


Molinn kveður




  • 1


clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

10 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

6 mánuði

13 daga

Tenglar