Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1620
Gestir í dag: 90
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1158622
Samtals gestir: 63400
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 10:28:16

Færslur: 2023 Desember

31.12.2023 17:30

Síðasti dagur ársins

Simmi blés rás fyrir sprengingar kvöldsins

Snilldar hugmynd

Aðeins að leika sér í snjónum

Gamlárskvöld

 

Spenntir að fara að sprengja

 

Smá forskot á sæluna smiley Þjófstart smiley

 

 

 

 

Möðruvallakirkja í kvöld

Strákarnir að skjóta á jólatréð

 

Og svo kom að því að fara að skjóta upp

 

 

 

Nokkrar myndir af tertunum

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Gangið hægt um gleðinnar dyr

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

30.12.2023 12:03

Súlur, Björgunarsveitin á Akureyri

Við vorum að versla þetta dót af Súlum, Björgunarsveitinni

á Akureyri. Það verður stuð annað kvöld

 

 

 

 

 

Þessi ömmu og afa gullmoli er í heimsókn þessa dagana

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

29.12.2023 17:52

Síðan mín, loksins komin í lag

Nú er síðan komin í lag og ég er búin að setja inn blogg fyrir

þessa daga. Síðan bilaði 17. des. og komst í lag í dag smiley 

Verið að setja inn rúllu. Við gefum annanhvern dag, hey af

fjárhústúninu og nýræktinni. Það eru tvær nýræktarheyrúllur

eftir úti og við höfum ekki þurft að henda neinni rúllu enn

Við þurfum að handmoka heyinu upp í vagninn. Það hefur 

gengið vel. Bara góð líkamsrækt. Svo erum við með svo góða

vinnumenn með okkur heart

 

Ærnar eru mjög hrifnar af þessu heyi

Þær skilja ekki mikið eftir
 

Maxímus er svo gæfur. Hann biður um klapp og finnst það

svo gott

 

 

 
 

Molinn kveður

 

 

28.12.2023 21:03

Útivera

Damian að draga Alexander

Og svo kom Leó og Damian dró þá báða

 

Þetta fannst þeim skemmtilegt

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

27.12.2023 19:16

Hrútarnir teknir úr gemlingunum

Við endurröðuðum í fjárhúsunum. Við settum allar ærnar í 

fjórar krær og þurfum því ekki að gefa nema á tvo garða. Við

tókum hrútana úr gemlingunum og nú eru bara fjórir hrútar

hjá ánum, einn í hvorri kró

Það var ein ær að ganga þegar við endurröðuðum

 

Litlu krúttin halda áfram að koma til okkar

 

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

26.12.2023 20:02

Fallegar jólagjafir

Við fengum margar fallegar jólagjafir. Hér koma nokkrar af

mörgum fallegum gjöfum

Við fengum þetta fallega skilti, frá Guðrúnu dóttir okkar og

fjölskyldu. Þetta ætlum við að setja upp á húsið okkar heart

Guðrún plataði pabba sinn. Hún gefur honum jóla bindi

hver einustu jól. Í ár setti hún stein í pakkann svo hann 

mundi ekki fatta að þetta væri jóla bindi. Sniðug smiley

Og við fengum viðbót í þetta fallega safn. Nú er nafna mín

mætt í safnið

Þetta finnst mér fallegt jólaskraut heart

Við fengum þennan fallega jóladúk, frá Maríu dóttur Þórðar

og fjölskyldu. Hún prjónaði hann. Mjög fallegur dúkur heart

Við fengum saltlampa frá fjölskyldunni Vöglum. Mér finnst

þessir lampar svo fallegir heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

25.12.2023 20:01

Jóladagur

Hangikjöt á Jóladag. Við vorum bara fjögur 

Simmi að blása. Það kom smá snjór í nótt

Við tókum snjósleðann út í morgun. Það verður eitthvað 

hægt að leika sér á honum næstu daga

Ég fór á sleðanum upp í fjárhúshólf. Allt nánast hvítt

Það snjóaði annað slagið í dag

Snjósleðinn í notkun

 

 

Það var orðið vont skyggni vegna snjókomu. En alltaf gaman

í útiveru

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

24.12.2023 19:53

Aðfangadagur

Möndlu skyrið borðað. Við setjum möndlu í skyr í staðin fyrir

grjónagraut. Alexander fékk möndluna

Við fórum svo í kirkjugarðinn með greinar og kveiktum á 

kertum

 

 

 

Ömmu gullmolar heart

Og "ömmu" gullmolar

 

Leiðin eru orðin 5

 

 

 

 

 

Féð fékk sína tuggu smiley

 

Og jólin gengu í garð.

Gleðileg jól mínir síðuvinir heart

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

23.12.2023 19:52

Tröpputréð skreytt

Við skreyttum tröpputréð í dag. Gísli í Dagverðartungu gaf

okkur þetta tré

Við fengum þessa flekkóttu kind að gjöf frá Oddi Bjarna og

fjölskyldu. Aðalheiður S. Eysteinsdóttir bjó hana til. Þetta er

mjög flott kind. Takk elsku vinir fyrir heart

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

22.12.2023 21:10

Jólatréð skreytt

Strákarnir skreyttu jólatréð í dag

Mjög flott hjá þeim

 

Við kláruðum líka að skreyta stofuna

 

 

Allt klárt fyrir jólin

Ingi Rúnar tók þennan bíl aftur í gegn. Hann verður hreinn

og fínn um jólin

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

21.12.2023 16:12

Kötturinn náðist í búr

Þessi köttur er búinn að vera hér hjá okkur, alltaf annað 

slagið í, ja, tvö til þrjú ár. Við sáum alltaf för í snjónum, en

vorum að öðru leiti ekki vör við hann. Við ákváðum að tala

við Ragnheiði Gunnarsdóttur í Kisukoti og fá lánað fellibúr

til að veiða hann. Hann lét sig þá hverfa í nokkra daga, kom

svo aftur og við náðum honum loksins í búrið. Við fórum með

hann til Ragnheiðar og hún er búin að auglýsa hann á fb. síðum

en enginn hefur gefið sig fram sem eiganda hans. Hann er 

búinn að vera svo lengi á flakki að hann er orðinn að villiketti.

Ef einhver kannast við kauða, þá er hægt að hafa samband

við Ragnheiði

Hræddur köttur

Jæja loksins kom aðeins snjór. Blásarinn fékk eitthvað að

gera. Það verða allavega ekki rauð jól

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

20.12.2023 17:50

Jólaball

Í dag var jólaball hjá strákunum, í skólanum. Nú eru þeir 

komnir í jólafrí, til 4. janúar

Flottir strákar

Þeir bökuðu piparkökur eftir skóla í dag

 

Flottar kökur hjá þeim

Ég bakaði eina plötuna aðeins of lengi, en góðar eru þær

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

19.12.2023 20:20

Glitský

Glitský í morgun

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nokkrar ær gengu upp, frá fyrsta deginum. Kannski eins gott,

því það voru 38 ær sem gengu fyrsta daginn. Þær eru komnar

niður í 22. Við erum með dagsetningu á öllum nema einni smiley

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

18.12.2023 18:04

Mömmukökur

Ég setti krem á kossana

Og meira baka ég ekki fyrir jólin

Og áfram koma fuglarnir í garðinn

 

 

 

Gaman að fylgjast með þeim

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

17.12.2023 09:13

Flottur Damian

Enn eitt árið fékk Damian viðurkenningu fyrir framúrskarandi

ástundun í skákinni

Svo stolt af honum

Jæja þá er það mömmuköku bakstur. Eins og ég sagði í gær,

þá keypti ég 6 plötur hjá Blikkrás. Ég gerði tvær uppskriftir

og gat gert allar kökurnar og sett þær á plöturnar. Þegar ég 

var búin að gera þær, þá byrjaði ég að baka

 

Ég setti 5 plötur í ofninn í einu

Ég var fljót að baka núna smiley

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

10 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

6 mánuði

13 daga

Tenglar