Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1490
Gestir í dag: 83
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1158492
Samtals gestir: 63393
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 09:02:31

Færslur: 2020 September

30.09.2020 21:02

Fjárrag um helgina


Jæja nú fer að koma í ljós hvað okkur vantar af lömbum og fullorðnu. Við ætlum að reka inn og fara yfir þetta um helgina. Mikið hlakka ég til að fá þetta á hreint emoticon





Molinn kveður


29.09.2020 20:30

Haustið


Snjókoma í morgun

Flug í gær

Uppstilling

Gimbrar undan 15-235 Spöng og 19-598 Glóa



Hrútur undan 17-314 Slettu og 16-820 Vidda





Molinn kveður


28.09.2020 20:54

Haust


Haustlitir


Fundur hjá þessum


Þetta hef ég ekki séð áður. Lítið og stórt lamb að sjúga. Þessi ær bar 22. september. Hún leyfir stóru lambi að fá sér sopa með litlu gimbrinni emoticon





Molinn kveður


27.09.2020 21:59

Enn vantar af fjalli


Enn er ekki alveg klárt hvað vantar af lömbum og heldur ekki hvað vantar af fullorðnu. Vonandi fer þetta að skýrast emoticon





Molinn kveður


26.09.2020 21:11

Aðrar göngur


Við Alexander fórum í göngur í fjallið. Alexander var svo duglegur. Við fórum milli kl. 10 og 10:30 upp í fjall. Við vorum komin niður kl. um 17. Hann stóð sig svo vel


Dranginn þarna í bakgrunn


Ooohh elsku krúttmolinn. Hann var ánægður og sagði að þetta væri mikið ævintýri


Það voru nú ekki margar sem komu. (Fyrir utan þessar, þá voru átta stk. ókunnugar) Þarna er Þessi sem bar í botni Myrkársdals, 12. september





Molinn kveður


25.09.2020 20:33

Stofuloftið nánast búið


Þá er nú loftið í stofunni nánast búið. Bara eftir að setja upp viftu og kítta smá
 ??  ??  ??  ??  ??


Fallegur morgunn, í morgun

Litla lambið á beit með móður sinni







Molinn kveður


24.09.2020 18:06

Nú fer framkvæmdum bráðum að ljúka


Loftið í stofunni

Ég held að þetta verði geggjað emoticon

Það er aldeilis raflögn sem þarf



Það verða 12 svona ljós, sem við ætlum að hafa í stofunni

Það verður svo geggjað þegar þetta verður allt búið. Búið að vera síðan 13. júlí


Möðruvallakirkja í morgun





Molinn kveður


23.09.2020 19:24

Vetur konungur nálgast


Ég flaug aðeins inn á Myrkárdal í morgun. Ég varð ekki vör við kindurnar sem voru þarna í gær. Þær hafa farið eitthvað. Þær hefðu átt að koma sér niður í ganginn, því það hefur snjóað aðeins í nótt


Við náðum í þessa sem bar í gær. Þarna er hún í snjónum með litla lambið sitt


Við settum hana á kerruna og fórum með hana hingað heim. Hún verður hér úti, en við setjum hana inn ef það verður leiðinlegt veður. Þetta er 16-267 Klessa með gimbur undan einhverjum af hrútunum okkar. Hún hefur fengið í vor þegar hún fór út

Það sónuðust 14 ær geldar, í febrúar og nú eru 7 af þeim bornar





Molinn kveður


22.09.2020 20:19

Sauðburður


Ja hérna. Sauðburður heldur áfram. Sjöunda "gelda" ærin bar í dag. Hún er á Myrká. Hún er með eitt lamb. Hin, sem bar 12. september, er enn inn á dal

Ég flaug drónanum rétt um 4 km. inn á dal í dag. Ég sá nokkrar kindur









Ég sá ekki þessa nýbornu (sem bar 12. sept.)





Molinn kveður


21.09.2020 19:59

Vigtartölur

Það eru komnar vigtartölur

300 lömbum var slátrað í dag, 21. september
Meðalþyngd dilka 19,9 kg.
Gerð 10,58
Fita 7,8

E    32 stk.
U  195 stk.
R    72 stk.
O     1 stk.


Nú fer haustinu að ljúka og við tekur vetur. Þetta gengur allt í hring

Já veturinn er aðeins að minna á sig


Þetta er loftið í stofunni. Við ætlum að láta klæða það

Byrjað að setja upp lektur



Þessi gimbur var að skila sér heim í dag. Hún er undan 17-358 Pysju og 17-581 Pits. Hún heitir Glódís





Molinn kveður


20.09.2020 21:21

Fjárrag í dag


Hrútarnir sem við tókum frá. Við veljum einhverja úr þessum hóp


Og svo líka gimbrarnar. Við þurfum nú eitthvað að fækka þeim

Sláturlömbin emoticon









Þessi flekkótti er þrílembingur undan 13-104 Skrukku og 17-586 Nóa. Hann var 51 kg.


Hvíti kollótti er þrílembingur undan 16-286 Drílu og 19-598 Glóa. Hann var 53 kg.


Þessi grái er undan 15-244 Ræmu og 18-834 Ramma. Hann var 49 kg.


Hrútur undan 18-389 Salínu og 16-108 Bláma. Hann va 51 kg.

Það er eftirsjá af þessum hóp


Við sprautuðum lömbin gegn bráðapest, vegna þess að við fáum ekki seinni slátrun fyrr en eftir mánuð





Molinn kveður


19.09.2020 22:03

Fjárrag í dag


Við rákum lömbin inn í morgun og erum búin að taka frá 300 til að senda í sláturhús á morgun. Þessi fóru hinsvegar til skoðunar til lífs

Líflambahópurinn. Það þarf nú að fækka þónokkuð í honum


Alexander var með okkur allan tímann. Hann var svo góður elsku stubburinn. Hér er hann að mála með vatnslitum

Litli snillingur emoticon





Molinn kveður


18.09.2020 20:53

Kindur og lömb


Aðeins að fá sér brauð



Gaman að hafa svona útsýni úr eldhúsglugganum, á hverjum degi



Þeir eru ekki alltaf sammála og þurfa að afgreiða það





Stórir hlunkar





Molinn kveður


17.09.2020 21:27

Kindur og lömb


Tekið út um eldhúsgluggann. Þau verða rekin inn á laugardaginn. Það fara 300 stykki, sem á að slátra á mánudaginn. Það þarf líka að velja ásetninginn, en það verður erfitt emoticon

Það voru 80 lömb 50 kg. og yfir. Þyngsta var 61 kg.
Og það voru 335 lömb sem voru 40 kg. til 49 kg.
Alls 415 lömb 40 kg. og yfir

Heimalingarnir skiluðu sér allir nema einn
Átta heimalingar og meðalvigtin af þeim rétt slefaði yfir 30 kg. Þeir ollu mér vonbrigðum emoticon emoticon emoticon

Ég veit ekki alveg hvað okkur vantar marga hausa. Gæti trúað að það væri eitthvað á milli 40 og 60





Molinn kveður


16.09.2020 21:33

Lömbin vigtuð


Það gekk vel að vigta. Það voru 19 manns sem komu að þessu (að vísu ekki alltaf allir í einu). Takk allir fyrir hjálpina emoticon

Við vigtuðum eitthvað um 800 lömb

Fallegur hópur

Meðalvigtin var 43,7 kg af 528 lömbum. Heimalingarnir eru inn í þessari tölu

Ég set meira inn á morgun





Molinn kveður




clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

10 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

6 mánuði

13 daga

Tenglar