Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1319
Gestir í dag: 54
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1158321
Samtals gestir: 63364
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 05:51:15

Færslur: 2009 Mars

21.03.2009 23:54

Sveitin heillar

jæja góða kvöldið !!!

Hér er allt gott að frétta.

Við vorum í sveitinni í dag, og vorum að moka út úr gamla hlutanum á fjárhúsunum, þannig að það verði hægt að hafa lambær þar í vor þegar þær bera. Nú er biðin eftir sauðburði hjá mér, eins og hjá litlum krakka að bíða eftir jólunum. Ohh það verður svo gaman um mánaðarmótin apríl / maí. Ég verð í fríi í tæpar tvær vikur þá, og verð mikið í sveitinni þann tíma.

Nú er Elísabet hjá okkur þessa helgi. Siggi og Júlli voru síðustu helgi og voru með okkur í sveitinni þegar kindurnar voru klipptar.

Ég setti inn myndir frá síðustu helgi, og deginum í dag. Tvö albúm.

Molinn kveður.

10.03.2009 22:34

Nafnskírteini

Halló hér !!!

Jæja nú er ég búin að setja inn myndir úr sveitinni. Við fórum þangað á sunnudaginn. Það var verið að klippa klaufirnar á kindunum. Ég er búin að skrifa við myndirnar á kindunum, nafn og númer. Er að reyna að læra nöfnin á þeim, og ég held að það séu fleiri sem eru að reyna það.

Jæja nú ætti ég ekki að vera í vandræðum að prenta út myndir. Haldið þið ekki að hann Þórður þessi elska hafi gefið mér eitt stykki prentara, og það gæðaprentara. Þannig að nú er ég búin að prenta út nafnskírteini fyrir kindurnar. Ætla að plasta það og hafa það í sveitinni.

Molinn kveður.

01.03.2009 23:19

Helgin að baki

Hæ.

Jæja nú er helgin að baki og vinnan kallar á morgun.

Það gekk vel með guttana um helgina. Við fórum ekki í fjallið í gær, því mamma hans Júlla fór með hann á æfingu. Við skruppum í sveitina í gær. Við fórum í sund á Þeló í dag.

Ég skannaði myndir og setti inn 80 myndir hér á síðuna mína.

Molinn kveður.
  • 1


clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

10 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

6 mánuði

13 daga

Tenglar