Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1287
Gestir í dag: 46
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1158289
Samtals gestir: 63356
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 05:28:46

Færslur: 2010 Júní

28.06.2010 19:47

Sælu líf

Hæ, hæ.
Jæja við erum alltaf í Lyngbrekku þessa dagana. Æðislegt veður búið að vera í nokkra daga. Það er búið að bera á allt grindverkið, og allann pallinn. Já og pottinn líka. Þórður búinn að standa sig vel í þessu. En svo á eftir að bera á nær öll húsgögnin á pallinum.
Ég er aðeins skárri í löppinni, en á langt í það að vera góð. Ég fór til Guðna bæklunarlæknis, á föstudaginn. Hann tók vökva úr hnénu og sprautaði sterum í það. Hann sagði að ég ætti að verða orðin góð á svona viku, hálfum mánuði. Ef ekki, þá er það speglun á hnéð. Ég fer að vinna aftur 26. júlí, þar að segja ef ég verð orðin góð.
Júlli og Siggi fá sumardvöl hjá okkur. Júlli verður 18 daga, og Siggi verður 9 daga, í júlí.
Svo er ættarmót hjá okkur helgina 16-18 júlí. Það eru pabbi og systkyni hans, og fjölskyldur. Það verður haldið í Varmahlíð.
En jæja Lyngbrekka er málið í dag og alla daga.

Molinn kveður.

18.06.2010 09:15

Ekki alveg dauð

Já komið þið sæl og blessuð !!!!
Jæja langt er nú síðan síðasta færsla var skrifuð hér. Sauðburður semsagt búinn, en ekki löngu búinn. Fyrsta kindin bar 1. maí og sú síðasta bar 12. júní. Já ég veit þetta tók rúman mánuð, en það er allt vegna þess að annar hrúturinn sem við náðum í á Strandirnar reyndist vera ónýtur  "(þarf þá að drepa pabba )"  En sauðburður gekk vel. Það fæddust 134 lömb. Kindurnar voru svo settar á fjall 13. júní. Við Þórður og fj. fengum 23 lömb, en misstum eitt. Þannig að við eigum 22 lömb, 15 hrúta og 7 gimbrar.
Nú tekur Lyngbrekka við. Erum búin að vera þar í nokkur skipti og það er svaðalega gott. Þórður dundar sér við hitt og þetta, og ég ligg bara í sólbaði, því ég er ekki orðin góð í fætinum. Þetta ætlar að taka þvílíkan tíma að jafna sig. Ég er að fara til Guðna bæklunarlæknis 25. júní, og vonandi fæ ég bata eftir þann tíma. Ég er búin að vera bólgin á hnéi síðan 8. maí.
Guðrún Helga er hér fyrir norðan og við njótum veðursins á pallinum í Lyngbrekku. Og þvílíka blíðan sem getur orðið þar.
Jæja vonandi líður ekki svona langt á milli skrifa hér, ætla að reyna að standa mig.

Molinn kveður.
                                                                                                                                            

  • 1


clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

10 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

6 mánuði

13 daga

Tenglar