Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1490
Gestir í dag: 83
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1158492
Samtals gestir: 63393
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 09:02:31

Færslur: 2024 Júní

30.06.2024 19:16

Kjarnaskógur

Við urðum nú að hafa góðan mat í tilefni að fjárflutningum

er lokið

Eftir matinn, fórum við í Kjarnaskóg. Veðrið í var svakalegt.

Hitinn fór í 25 gráður. Aðeins of mikið, því það vantaði goluna

Þetta listaverk gerði ömmu og afa gullið, þessi sem er til

hægri á myndinni, fyrir nokkrum árum

Ömmu og afa gullmolar heart

Nafna mín heart

Ömmu og afa gullmoli

 

Falleg systkin 

 

Litla klifurmús

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

29.06.2024 16:39

Síðasti dagur í fjárflutningi

Við fórum tvær ferðir í dag með féð og þá er því lokið. Við 

erum með þrílemburnar og tvílembdu gemlingana hér

heima. Líklegast verða þær heima í sumar

Elíza og lömbin og Eyvör dóttir hennar voru frelsinu mjög

fegnar. Þær tóku strauið inn á Myrkárdal

Bíða eftir frelsinu

 

 

 

 

Þá er fjárflutningi lokið, þar til í haust 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

28.06.2024 18:36

Tvær ferðir í dag

Við fórum tvær ferðir með féð í dag. Þetta er að ganga svo

svakalega vel hjá okkur hjónum heart

Fjórar sem voru smálömb í vetur, tvær sem sónuðust með

eitt og ein geld. Gott fyrir þær að komast á fjall

 

 

Já þær voru frelsinu fegnar

 

Við eigum eftir að fara tvær ferðir og við förum þær á morgun

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

27.06.2024 19:17

Fjórða ferð í fjárflutningum

Lítill tími til að taka myndir þessa dagana. Það gengur vel

að reka inn, flokka, klippa klaufir, gefa ormalyf og flytja féð

Við fórum eina ferð í dag og ætlum að fara eina ferð á 

morgun

Og klára um helgina

Þær eru frelsinu fegnar

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

26.06.2024 19:53

Bræðrahittingur

Það var bræðrahittingur í kvöld hjá þessum frábæru

bræðrum

 

Svo flottir heart

Við fórum eina ferð í dag með féð

 

Við klárum um helgina smiley

Við gefum öllum þetta ormalyf

Þessir vinnumenn eru flottir og eru búnir að standa sig vel.

Við höldum áfram á morgun

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

25.06.2024 18:39

Byrjuð að keyra á fjall

Við byrjuðum í fjárragi í dag. Við keyrum fénu á Myrkárdal.

Við gefum öllu fénu, þá allar ær, hrúta og lömb, ormalyf. Við

klippum klaufirnar á öllu fullorðnu fénu. Við erum búin að

klippa klaufir á 40 stk. Við setjum ekki þrílembur og tvílembda 

gemlinga á fjall. Allavega ekki strax ef við látum þær fara. 

Við notum bara þessa kerru. Við getum tekið tólf lambær í

einni ferð. Við fórum tvær ferðir í dag. Tökum bara eina ferð

á morgun

Sum lömbin eru orðin svo stór

 

Mjög rúmt á þeim

 

 

Þær verða frelsinu fegnar. Við höfum aldrei sleppt svona

seint

Hrossagaukshreiður. Það er í fjárhúshólfinu

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

24.06.2024 18:48

Borg óttans

Við gistum fyrir utan hjá Sigurjóni og Sollu, í nótt. Við

vöknuðum snemma í morgun, til að ná að mæta með

Alexander til augnlæknis kl. 8. Við fórum í Sjónvernd

 

Hann stóð sig vel allann tímann. Hann er með 70% sjón

þegar hann er með gleraugun. Hann fékk dropa í augun og

þarf að mæta aftur, svo læknirinn geti mælt sjónina hjá 

honum. Við þurfum að fara aftur suður 2. júlí

Við vorum fegin þegar við gátum ekið út úr BORG ÓTTANS. 

Við ákváðum að keyra á Borðeyri, þar sem ég eldaði mat og

strákarnir léku sér í fjörunni á meðan

Steiktar bollur og egg, getur ekki klikkað

 

Eftir matinn, héldum við ferð okkar áfram heim. Það er 

alltaf gott að koma heim eftir ferðalag smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

23.06.2024 17:32

Fjölskyldu og Húsdýragarðurinn

Pylsur og pylsubrauð í hitun. Alltaf gott að borða þetta á 

ferðalagi. Við gistum á planinu við Ólafslund. Það er búið að

rigna alla ferðina, þangað til við komum til Reykjavíkur, en

við fórum þangað í dag

 

Þegar við komum til Reykjavíkur, fórum við í Fjölskyldu og

Húsdýragarðinn. Við vorum svo heppin að það var gott 

veður allan tímann sem við vorum þar. Við vorum þar rúma

þrjá klukkutíma. Þegar við komum í bílinn, fór að mígrigna

Það voru tveir latir selir þarna

Minkur

Refur

Búið til úr 2850 skeifum. Þetta kalla ég listaverk

 

Bláir froskar

Froskar

Bjöllur

Spænsk Salamandra

Kiðin eru mjög gæf þarna

Hreindýrin voru löt og sváfu bara

Við fengum okkur hressingu 

Þessi var sá eini sem þorði að fara í þetta tæki

 

Hugrakkur, bara 6 ára

 

Þeir fóru í lestina

Og bílana

Feðgarnir fóru í skipið

 

Þeir fóru allir í bátana

 

 

 

Og hringekjuna

 

Tveir fóru á flekann

Við enduðum svo daginn hér hjá Sigurjóni og fjölskyldu

 

Svo er það augnlæknir á morgun með Alexander

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

22.06.2024 19:20

Smá ferðalag

Við lögðum af stað í ferðalag í dag. Við þurfum að vera í

Reykjavík á mánudaginn kl. 8. Alexander er að fara til

augnlæknis og já landsbyggðarfólkið er gefinn tími kl. 8 um

morguninn smiley

Við fórum nú ekki langt. Við ætlum að vera á planinu hjá

Ólafslundi í nótt. Það er búin að vera rigning alla leiðina og

það rignir enn

Já hér er leyfilegt að vera

 

Þessi skilti eru á planinu

 

 

 

Við förum svo til Reykjavíkur á morgun

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

21.06.2024 16:48

12 arfgerðarsýni komu í dag

22-019 Krukka með hrút og tvær gimbrar. Hún var fjórlembd.

Fjórða lambið var vanið undir 19-451 Kubbu. Þau eru undan

23-726 Pixa. Gimbrarnar eru með ARR arfgerð

17-329 Reka með hrút undan 23-721 Fastusi. Hún var

einlembd og við vöndum undir hana hrút undan

23-043 Lettu og 23-723 Ratipong

23-041 Æsa með hrút undan 23-723 Ratipong. Hann er 

arfhreinn T137

18-392 Murta með hrúta undan 23-724 Arró

Annar þeirra er með arfgerðina ARR. Það er þessi til vinstri

Þessi er að standa sig svo vel. Þetta er 16-282 Katla. Hún var

einlembd. Þegar hún var að bera, þá tókum við þessi þrjú

og vöndum undir hana. Við tókum svo hennar lamb og 

vöndum það undir aðra á. Þessi þrjú fæddust líflítil og við

vorum með þau fyrst til að byrja með í hjólhýsinu. Þau 

brögguðust svo og við vorum með þau sem heimalinga, þar

til þau fóru undir Kötlu.

Eitt er undan 17-347 Pytlu og 23-721 Fastusi, hrútur.  T137

Eitt er undan 18-428 Kvísl og 23-722 Brútusi, gimbur.  T137

Og eitt er undan 21-001 Parísi og 23-721 Fastusi,

hrútur.  T137 og 154.  Þau dafna vel hjá henni

Elíza kemur alltaf til mín og vill fá brauð

17-336 Natalía með gimbrar undan 23-721 Fastusi. Önnur

er T137, þessi hægra megin, og hin er H154

20-514 Dendý með hrúta undan 23-720 Valver. Þeir eru báðir

T137  Hún var þrílembd og þriðja lambið, hrútur, var vaninn

undir 23-043 Lettu. Hlutlaus arfgerð á honum

17-323 Ingileif með hrút undan 23-725 Dúdda. Hún var 

tvílembd og gimbrin var vanin undir 17-370 Karþagó. Það

var gert vegna þess að þegar hún var að bera, þá vöndum

við tvær gimbrar sem voru móðurlausar undir hana. Þá

var hún með fjögur lömb. Hún mjólkaði þeim alveg í nokkra

daga. Við þurftum ekki að gefa þeim mjólk. Gimbrarnar

eru undan 23-048 Glettu og 23-726 Pixa. Önnur er ARR og

hin er arfhrein ARR. Hrúturinn er líka ARR

Hrútar undan 21-009 Valíu og 23-722 Brútusi

Hrútur undan Valíu og Brútusi. Hann er með T137

 

Við fengum 12 sýni úr greiningu í dag. Þá er eftir að greina

fjögur sýni. Þau koma vonandi á föstudaginn

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

20.06.2024 20:16

Kindur

18-409 Elíza. Fyrri myndin er af henni þegar hún var lamb

2018

 

23-044 Eyvör. Fyrri myndin var tekin í fyrra þegar hún var

lamb

 

Og þetta er Halla. Hún verður sett á í haust. Nú er spurning, 

verður hún eins úthyrnd og systir hennar og móðir.

Í haust verðum við með þrjár forystuær og einn hrút

Elíza með Höllu og Bjössa

Halla og Bjössi. Bjössi verður kannski settur á sem sauður,

í haust

Lömbin tæta í sig brauð. Þessi gimbur er undan

20-504 Myrju og 23-722 Brútusi

Þessar gimbrar eru undan 17-376 Fóu og 23-724 Arró

17-336 Natalía með gimbrar undan 23-721 Fastusi

20-496 Fnjósk með hrút og gimbur undan 23-724 Arró

Tekið út um eldhúsgluggann. Lömbin að éta blómin okkar smiley

Mynd tekin úr fjallshólfinu. Möðruvallakirkja

Tekið úr fjallshólfinu

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

19.06.2024 18:02

T137 lömb

Lömb undan 18-408 Elínu og 23-721 Fastusi. Þau eru öll með

arfgreiningu T137

Hrútur 

Hrútur. Það er nú ekkert varið í þennan. Hann er með 

gallaðann haus

Gimbur

 

Lömb undan 20-521 Offu og 23-722 Brútusi. Bæði T137

Hrútur. Gæti verið ásetningur

Gimbur. Mjög trúlega ásetningur

 

Gimbrar undan 15-244 Ræmu og 23-720 Valver. Báðar T137

Gimbur. Kemur til skoðunar til ásetnings

Og þessi gimbur líka og svo mörg önnur smiley

 

Við fáum líklegast úr síðustu greiningunni á föstudaginn

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

18.06.2024 19:29

Maxímus

23-727 Maxímus

Hann kann að klifra

Og ná sér í lauf

20-518 Sæla með tvo hrúta og eina gimbur undan

23-720 Valver

18-410 Túla með tvo hrúta undan 23-720 Valver. Þeir eru

báðir með T137 en koma ekki til greina í ásetning, vegna

galla á haus (hníflar)

Móðurlausu þrílembingarnir spjara sig vel

19-460 Larisa með hrút og gimbur undan 23-724 Arró

20-506 Marey með tvo hrúta og eina gimbur undan

23-725 Dúdda

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

17.06.2024 18:05

Gleðilegan þjóðhátíðardag kæru síðuvinir

Við fórum á bílasýningu hjá Bílaklúbbi Akureyrar, í dag

Myndirnar tala sínu máli

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Damian sestur í þennan bíl

Maríuerlan hefur nóg að gera við að mata ungana sína

 

 

Maríuerluungar. Þeir eru allavega 5

Auðnutittlingur

Ég held að þetta sé Auðnutittlingsungi

Og þetta líka

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

16.06.2024 13:46

Gaman að gefa brauð

Við byrjuðum morguninn á að gefa kindunum brauð

 

Svo gaman

Maxímus kom og vildi klapp

Hann er alveg einstakur hrútur

Þær koma margar í brauð

 

 

Þessi ömmu og afa gullmoli fann kindina sína og er búinn að

gefa henni mikið brauð. Hann gistir hjá okkur í nokkra daga

 

Forystuféð okkar

18-409 Elíza

23-044 Eyvör. Hún var höfð geld

23-727 Maxímus

Gimbur undan Elízu og Maxímus. Hún verður sett á í haust. 

Hún heitir Halla

Hrútur undan Elízu og Maxímus. Hann heitir Bjössi

Hrútur og gimbur undan 18-395 Úllu og 23-722 Brútusi

16-285 Brók. Hún er að springa. Hún á að bera 8. júlí og er

með tvö lömb

21-001 París með hrút undan 23-721 Fastusi. Hún átti annan

hrút sem fæddist lítill og líflítill. Við tókum hann inn í hjólhýsi

og vöndum undir hana annað lamb. Daginn eftir fór hún að 

stanga lambið sem við vöndum undir hana. Við gáfumst upp

á henni og tókum lambið frá henni. Hennar litli hrútur

braggaðist og fór undir aðra á. Hún gengur þá bara með

þennan hrút og hann er ekki lítill

Hrútur undan París. Hann og bróðir hans eru báðir með

T137 og N138

17-358 Pysja með hrút og gimbur undan 23-724 Arró.

Hrúturinn er með ARR og N138

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

10 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

6 mánuði

13 daga

Tenglar