Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1530
Gestir í dag: 85
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1158532
Samtals gestir: 63395
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 09:23:57

Færslur: 2023 Mars

31.03.2023 18:23

Gott veður

Svona er fjallið. Nánast enginn snjór. Það kom hláka í gær

Veðrið í dag var mjög gott. Hitinn fór í 12,6 um kl. 16 í dag

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

30.03.2023 18:40

Árshátíð Þelamerkurskóla

Árshátíð Þelamerkurskóla var í dag. 

Flott sýning í alla staði. Strákarnir okkar tóku þátt

og stóðu sig svakalega vel

 

 

Flottir strákar

Alexander á sviðinu

Damian var sögumaður og stóð sig mjög vel í því

Og Bubbi þarna í rauða kjólnum

 

Við kláruðum að sprauta féð, fyrri sprautuna gegn

lambablóðsótt, í morgun

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

29.03.2023 19:11

Fyrri sprautan, dagur 2

Við sprautuðum, fyrri sprautuna gegn lambablóðsótt, 

ærnar í þessum tveimur króm. Við klárum að sprauta á

morgun, fyrri sprautuna. Það eru bara lömbin og hrútarnir

eftir

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

28.03.2023 14:42

Lambablóðsótt, fyrri sprautan

Í morgun, sprautuðum við fyrri sprautuna gegn lambablóðsótt,

ærnar í tveimur króm. Við sprautum á morgun og hinn restina

Þessar bíða eftir sprautunni

Þessar tvær krær búnar og þessi fjögur,sem eru í syðstu krónni

Svo er það útiveran og snjósleðinn var notaður 

Sá stutti keyrir vel

Svo er blásarinn notaður. Simmi kom og blés bílastæðið hjá

okkur. Gott að taka mesta snjóinn áður en hlákan mætir

Strákarnir að höggva klakann fyrir framan bílskúrshurðina

Og líka leika sér í snjónum

 

Og moka frá bílskúrshurðinni

Snjótittlingur

Auðnutittlingar

Auðnutittlingar. Annar þeirra (þessi sem er á matardallinum)

er með rauða bringu. Það er karlfugl

 

 

Gaman að fylgjast með þeim

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 
 

 

27.03.2023 19:09

Sleðafjör

Strákarnir léku sér á sleðanum í dag

Alexander er svo duglegur. Hann keyrði aleinn og tókst það

mjög vel

Gaman, gaman

Enn eru það fuglar

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

26.03.2023 19:09

Systur

 

Þessar eru alsystur, 16-270 Sif og 17-330 Stássa. Þær eru 

báðar þrílembdar

Systurnar 22-012 Gorma og 22-011 Glás. Þær eru

fimmlembingar. Við héldum þeim ekki undir hrút. Þær fara

létt með að klifra upp á garðabandið

 

Fuglarnir halda áfram að koma til okkar

 

Þetta er mikið notað

 

Snjótittlingurinn gerði tilraun til að fá sér að borða þarna, 

en hann hætti við

 

Þeir eru búnir að borða mikið í dag og í gær

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

25.03.2023 20:02

10 ára

Þessi fallegi gullmoli hefði orðið 10 ára í dag heart

Blessuð sé minning þín elsku engillinn okkar heart

Við kveiktum á kerti hjá honum heart

Fjölskylda hans kom með veitingar í tilefni 10 ára

afmælis hans. Hér eru foreldrar hans og systkini

Og afi hans og amma

 

Takk fyrir daginn kæru vinir heartheartheart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

 

24.03.2023 18:22

Litla fallega nafna mín

Við hittum þessar elskur í morgun. Tókum smá göngutúr með

þeim. Fórum í jólahúsið. Að vísu ekki inn heldur vorum úti 

við húsið

Þessi fallegi gullmoli, nafna mín heart

Ég tók nokkrar myndir af fuglum sem þarna voru.

Svartþröstur, karlfugl

Svartþröstur, kvenfugl

Svo sá ég gráþröst

Gráþröstur

Svo eru það fuglarnir hér heima. Auðnutittlingur

Snjótittlingur

Gaman að fylgjast með þeim

Auðnutittlingur

Starinn kom líka

Hann fékk líka að éta

Og bingó yes Fuglarnir eru búnir að fatta þetta

Ég átti nú ekki von á því að þeir mundu fatta þetta strax

Þetta er æði yesyesyes

Þeir prufuðu allar tegundir

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

23.03.2023 19:20

Burðardagar

Þórður bjö til burðarlista og setti hann upp í fjárhúsunum

Þessi listi er með burðardagana í röð

Og þessi listi er með ærnar í númeraröð með burðardegi

22-18 Kópelía

22-019 Krukka

22-020 Skel

22-021 Kotra og 22-016 Saga

22-017 Lumbra

22-027 Loppa

22-012 Gorma

 

Gimbrarnar eru á fullu, að taka út þroska

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

22.03.2023 19:49

Fuglar

Við höfum verið dugleg að gefa fuglunum í vetur. Við höfum

gefið þeim á jörðina, þá í snjóinn eða á auða jörð

 

Við keyptum svona matardall fyrir þá, í dag. Nú er bara

spurning hvenær þeir læra á þetta og þora að fá sér úr þessu.

Kannski verður það ekki fyrr en næsta vetur smiley

Vonandi þora þeir fljótt. Mér finnst svo gaman að fylgjast

með þeim smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

21.03.2023 19:59

Kindur

Ærnar hafa það gott og já það styttist í sauðburð

 

 

Smálömbin, sumar/haust lömbin hafa stækkað. Gimbrarnar

eru byrjaðar að ganga, en þær fá engann hrút smiley

Við erum enn með hrút hjá þessum. Við tökum hann frá um

mánaðarmótin. Þá er hann búinn að vera tvö gangmál hjá 

þeim

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

20.03.2023 20:47

Bikarmeistari 2023

Ömmu og afa gullmoli, birkameistari í handbolta, með

3. flokki Fram, 2023. Innilega til hamingju Dagur minn

 

Sólargeislar í morgun

Veðrið í dag. Fallegt en kalt smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

19.03.2023 17:30

Snjósleðarúntur

Einn veikur

Einn í afslöppun

Og þrír úti að leika

Mjög gaman hjá þeim

Kakó og kökur á eftir útiverunni

 

Núna eru strákarnir farnir heim og við aftur orðin 5 í heimili

 

 

 

 

 

Molinn kveður 

 

 

18.03.2023 16:25

Útivera

Morgunmatur

Við fengum nýjan vinnumann um helgina

Þegar einn fer (Alexander), koma tveir í staðinn. Flottir 

vinnumenn um helgina

Þessir tefldu nokkrar skákir. Mjög sáttir

Það snjóaði í logni

Við fórum út að leika og snjósleðinn kom að góðum notum 

 

Þeir skiptust á að keyra sleðann og allir ánægðir

 

 

Góð og löng útivera í dag

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

17.03.2023 18:45

Styttist í sauðburð

Sauðburður hefst 1. maí

Fyrsta daginn, 1. maí eiga 7 ær tal. Af þeim eru 4 þrílembur

og 3 tvílembur. Það eru líka tveir gemlingar sem eiga tal

þennan dag. Önnur er einlembd og hin tvílembd

 

2. maí er bara ein ær og einn gemlingur sem eiga tal og þær

eru báðar tvílembdar

 

3. maí eiga 12 ær tal og af þeim eru 3 þrílembur, 6 tvílembur

og 3 einlembur. Það verður vonandi hægt að venja undir 

þessar þrjár einlembur. Það verður allavega nóg til af 

lömbum til að venja undir. Það er líka einn gemlingur sem 

á tal þennan dag og hann er tvílembdur

 

Já það styttist í sauðburð smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

10 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

6 mánuði

13 daga

Tenglar