Já, há, það hvellsprakk á bílnum. Það er nú ekki oft sem dekk
springur nú til dags. (Skeði oft í gamla daga) Ég var á bílnum,
náði ekki að losa varadekkið (það er undir bílnum). Það var
fast og ekki hægt að losa það. Enginn tjakkur og lykill í bílnum.
Eða ég veit ekki hvar það er. Leitaði mikið. Ég hringdi í vin (Þórð)
og hann kom með tjakk og lykil. Við tókum dekkið undan og
fórum með það á verkstæði, ásamt einu nagladekki.
Nagladekkið var sett á felguna og núna er bíllinn á þremur
sumardekkjum og einu vetrardekki. Næsta skref, hvernig
losar maður varadekkið og hvar er tjakkurinn og felgulykillinn
í bílnum. Við verðum að komast að því ![yes yes](https://molinn62.123.is/admin/js/CKEditor40/plugins/smiley/images/thumbs_up.png)
![](/fs/f8ff22ba-a13b-480e-b7b8-6345ee224043_MS.jpg) |
Jæja þessi snjósleði er okkar. Við erum að kaupa hann. Það
verður gaman að draga strákana á skíðum/bretti í vetur
![](/fs/1f6f2eb8-d042-4c55-9005-fa0bfb126f66_MS.jpg) |
Geggjað verður að eiga sleða ![smiley smiley](https://molinn62.123.is/admin/js/CKEditor40/plugins/smiley/images/regular_smile.png)
Molinn kveður
|
|
|
|
|