24.08.2008 23:44
Já halló !!!!
Jæja nú erum við Þórður komin heim úr alveg frábæru ferðalagi. Við fórum á Landbúnaðarsýninguna á Hellu. Guðrún Helga fór með okkur og svo komu Sigurjón, Solla og Dagur og svo líka Friðrik og Yumiko. Þetta var fín sýning, og gaman að geta farið þangað. Þórður var ekki fyrr kominn út úr bílnum en hann hitti gamlan SKÓLABRÓÐUR. Hann hitti þá nokkra. Við skruppum svo til Keflavíkur til Maríu. Við fórum svo líka til Sigurjóns og Sollu, og svo í flugi heim. Flugið suður var mjög gott útsýnisflug. Ég sá Öxnadalinn, heiðina, Varmahlíð, Sauðárkrók, Blönduós, Skagaströnd og Hvammstanga. Svo var allt í skýjum eftir það. Ég var nú að reyna að sjá einhverja hvíta bletti í nálægð við Sauðárkrók, en ég held að allir hvítu blettirnir sem ég sá hafi verið snjór. Ég setti inn nokkrar myndir af þessu ferðalagi okkar. Nóg í bili.
Molinn kveður.