15.09.2008 21:31
já komið þið sæl og blessuð.
Núna er ég ánægðasta manneskjan í öllum heiminum. Það voru réttir í dag á Þverárrétt. Restin af öllum kindunum á Rauðalæk skiluðu sér af fjalli. Þá er Rauðilækur búinn að kollheimta. Ég setti auðvitað inn myndir af þessum atburð og svo bætti ég við myndum í albúmið: kindur vor og haust.
Guðrún Helga er nú stödd hér á Akureyri. Hún kom með flugi í gærkvöld, til að geta farið í réttir í dag. Hún fékk meira að segja að vera hjá flugstjóranum í vélinni á leiðinni hingað. En hún var með okkur í réttunum í dag. Svo þegar réttirnar voru búnar, þá fórum við og gáðum að Tabbý og Klemmu, sem komu á laugardaginn í Bægisá. Þær voru settar í mjög stórt hólf hjá Helga á Bægisá . En okkur datt í hug að gá að þessum elskum og fundum þær strax. Við fórum með brauð og ætluðum þeim að koma. Það var bara hún Tabbý sem kom og það er voðalega skrítið hvað hún er gæf. Ég tók nú myndir af þessum hitting. Þetta var nú alveg toppurinn á tilverunni allur þessi dagur í dag.
Árdís og Kristófer verða fram á sunnudag hér hjá okkur, en fá að gista í nótt hjá ömmu Fanneyju, og koma svo aftur hingað á morgun.
Ég er í fríi þessa viku en ég þarf að vinna á morgun og svo ekki fyrr en á mánudag.
Molinn kveður.