Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 843
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 1169
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 2765992
Samtals gestir: 92523
Tölur uppfærðar: 8.11.2025 18:02:29

18.06.2009 23:06

Aftur Tabbý

Hæ !!

Jæja 17. júní var í gær. Við fórum ekkert í bæinn, en við fórum í heimsókn í sveitina, og tókum rúnt til að athuga hvort við sæjum Tabbý, og viti menn við sáum hana og tvær til viðbótar, þær Lambhúshettu og Rauðhettu. Þær komu allar og borðuðu pylsubrauð. Ég tók nokkrar myndir og setti inn. Við fórum svo í Lyngbrekku, og Þórður setti glerið í gluggann á stafninum. Við tókum aðeins til. Ekki veitti af, því þegar Þórður sagaði stærra gat fyrir gluggann, þá fauk sag og rusl út um allt hús.

Ég er búin að vera að vinna í tölvunni í allan dag. Ég var að gera nafnspjöld, með myndum af kindunum með lömbin sín. Ég er búin að prenta þau út og setja á vegg í eldhúsinu, þannig að nú get ég alltaf séð þær og lömbin. Æðislegt.

Molinn kveður.


clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

14 ár

1 mánuð

24 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

11 ár

3 mánuði

27 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

3 ár

9 mánuði

25 daga

Tenglar

Eldra efni