05.12.2011 18:19
Jæja nú er þetta orðið gott af veikindum hér. Ég er búin að vera með magapest síðan á miðvikudag. Ég held að ég sé loksins að verða góð, og ætla að reyna að fara í vinnuna á morgun. Ég hef nánast ekkert borðað í 5 daga, en lystin er að koma hægt og rólega. Ég varð fyrir svo miklu vökvatapi, að ég léttist um 4-5kg. Ég verð nú snögg að ná þeim til baka þegar ég er búin að jafna mig á þessu öllu.
Fengitíminn er byrjaður. Við erum búin að halda 17 kindum og láta sæða 7. Restinni verður svo haldið á næstu dögum. Svo vitum við ekki hvenær þær ganga sem misstu svampinn. Við létum sæða 4 með Snæ og 3 með Þrist. Við ætluðum svo að láta sæða forystukindurnar með Jóakim, en hann meiddist eitthvað og náðist ekki sæði úr honum. En þær fóru undir forystuhrúta á Brakanda.
Molinn kveður.