Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 3834
Gestir í dag: 185
Flettingar í gær: 2792
Gestir í gær: 114
Samtals flettingar: 2462989
Samtals gestir: 90523
Tölur uppfærðar: 2.9.2025 23:36:28

11.03.2012 11:02

Rúningur

Jæja nú eru ömmubörnin farin. Þau fóru á fimmtudagsmorgunn. Strákarnir fóru í flugi, í fylgd með samstarfsmönnum Þórðar, og það gekk allt vel. Það var gaman að hafa þau hérna. Mikið fjör og gaman hjá þeim. Þau hafa svo lítið verið saman, því þeir bræður búa í Reykjavík, og Ísabella nýlega flutt til Íslands, eða í sumar. Þau fá að hittast aftur í vor, í sauðburðinum. Það verður mikið fjör þá.
Siggi og Júlli komu á föstudaginn, og eru hér um helgina.
Við létum klippa féð á föstudaginn. Það er munur að sjá þær núna. Snoðið fer þeim svo illa finnst mér, að vísu ekki öllum.
Nú er bara að bíða í einn og hálfan mánuð, eftir sauðburði og sú bið verður löng. Ég er að vísu orðin vön að bíða, (eftir doksum), þannig að þetta ætti nú að vera orðinn vani.
Einar Breki er svo líklegast að koma í fyrramálið, ásamt móður sinni, að heimsækja ömmu og afa. Það verður gaman.
Það er svo gott að hafa svona fjör í kringum sig, því annars væri ég löngu komin inn á hæli, að hanga svona ein heima.
Ég setti inn nokkrar myndir. Á samt eftir að taka betri myndir af kindunum, eftir rúninginn.

Litlu fjörkálfarnir mínir. Sakna þeirra.



Molinn kveður.





clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

13 ár

11 mánuði

18 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

11 ár

1 mánuð

21 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

3 ár

7 mánuði

19 daga

Tenglar

Eldra efni