Þá erum við búin að fara á ættarmót á Skagaströnd. Það var mjög gaman, en alltof stutt. Við fórum nefnilega á laug.morgunn og komum aftur heim um kvöldið. Hefði viljað vera alla helgina. Ég er búin að setja inn myndir sem ég tók þarna.
Það er verið, á fullu, að undirbúa, málningu á þökin á fjárhúsunum og hlöðunni á Möðruvöllum. Ég held að það eigi að mála þau í dag eða á morgun. Eða sko sprauta þau. Ég fer og mynda í dag, og set inn myndir vonandi í kvöld. Það verður mikil breyting á húsunum eftir þetta :-)
Júlli fór í gær frá okkur, og Siggi Tumi fer í dag. Það verður frekar tómlegt hjá mér eftir þessa dvöl þeirra hér. En þeir koma svo aftur helgarnar sínar :-)
Ég fer á hverjum degi ennþá á sjúkrahúsið í hreinsun, plokk og umbúðaskipti, á fætinum, og á því miður eftir að fá að gera það í langann tíma enn. Það er verið að spá í það hvað eigi að gera við mig um réttirnar. Ég held að það eigi að binda mig niður, (svo ég verði til friðs), en það á eftir að finna stað fyrir mig. Eða þetta voru þeir bræður, Þórður og Simmi að tala um í gær. Ha,ha, þeir eru bara í djókinu. En ég vona að ég verði orðin góð fyrir réttir :-)
Molinn kveður.