Hér eru nokkrar myndir af honum Blossa.
 |
22.maí |
 |
14. ágúst |
 |
23. september |
 |
1. janúar |
 |
26. janúar |
Já þetta er hann Blossi, undan Zeldu, og Þristi sæðishrút. Mér finnst gaman að skoða myndirnar sem ég hef tekið að kindunum, og bera þær saman, og sjá hvað þær þroskast. Mér finnst mjög mikill munur á 4 og 5 myndinni. Þær eru teknar með 25 daga millibili. Hann er að þroskast hratt núna.
 |
Nú er ég komin með, upp á vegg í fjárhúsunum, skrá yfir fang- og burðardagana á kindunum. |
Það er þægilegt að hafa þetta upp á vegg, og geta skoðað á hverjum degi.
Við erum búin að skipta um merki í öllum kindunum núna. Við kláruðum, það sem eftir var að setja í, í dag.
Molinn kveður.