Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 268
Gestir í dag: 50
Flettingar í gær: 1672
Gestir í gær: 263
Samtals flettingar: 1249769
Samtals gestir: 66489
Tölur uppfærðar: 8.9.2024 03:10:19

27.12.2013 19:00

Hið ljúfa líf

Gleðileg jól og farsælt komandi ár með þökk fyrir árið sem er að líða, kæru síðuvinir.


Já ég er á lífi. Ég er búin að vera mjög upptekin og hafa mikið að gera í desember. Núna ætla ég að fara að standa mig betur í skrifum hér. 


Þeir hafa það nú gott, Týri og Snati. Hér liggja þeir á meltunni. Þeir fengu það í jólagjöf að fá að liggja á þessari mottu. Komnir inn fyrir þröskuldinn, en fara ekki lengra.


Við heimtum eina gimbur núna rétt fyrir jólin. Hún er vel á sig komin. Hún var á Féeggsstöðum og kom á Þúfnavöllum. Móðir hennar heimtist síðust af ánum og kom á Þúfnavöllum líka, með hina gimbrina. Þessi hefur orðið viðskila við þær. Þetta var ein kind og 5 lömb, þar af eitt hrútlamb, sem fannst, þannig að það má búast við því að hún sé fengin.  


Þessi fallegi drengur, ömmugullið mitt, kom í heimsókn til okkar ásamt mömmu sinni, 11.-16 desember. Ég tók mér frí í vinnunni 12, 13 og 16 desember til að njóta þeirra. Þau koma ekkert um jólin emoticon


Nú fer fengitíminn að taka enda. Við erum búin að skrá allar kindurnar sem við höfum séð ganga. Við erum þá með burðardagsetningu á þeim. Þórður sæddi 12 kindur. Við notuðum fjóra hrúta í það. Garra, Dolla, Dal og Snævar. Við erum búin að sjá tvær af þeim ganga upp. Vonandi halda hinar.

Við erum búin að hafa það gott það sem af er jólunum. Við vorum með 30 manna jólaboð á jóladag og erum svo með annað jólaboð á sunnudaginn, sem verður aðeins stærra.


Hænurnar hafa það gott í kofanum. Þær verpa frá einu upp í sex eggjum á dag. Standa sig vel.

Ég er búin að setja inn myndir. 


Molinn kveður.






clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

11 mánuði

24 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

1 mánuð

27 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

7 mánuði

25 daga

Tenglar