Aðrar göngur búnar. Okkur vantar ennþá 82 hausa af fjalli. 33 fullorðnar og 49 lömb. Af þessum 33 fullorðnu, eru 7 af þeim lamblausar, gemlingar og ær.
Það á eftir að rétta á Þúfnavöllum. Vonandi fáum við eitthvað þar.
Við Damian fórum í fyrirstöðu. Við þurftum að bíða í 4 til 5 tíma. Damian stóð sig vel. Hann kvartaði aldrei. Hér er hann að kíkja hvort hann sjái kindur.
Og já, hann sá kindurnar koma. Auðvitað klikkaði hann ekki á fyrirstöðunni.
Þessa mynd af Þórði og Týra, tók ég á símann minn í gegnum kíkinn.
Og hér er önnur mynd tekin í gegnum kíkinn
Simmi fer um allt á buggybílnum sínum. Hann er algjör snillingur að keyra þetta tæki. Ég held að það sé enginn eins flinkur og hann. Hér er hann á fullri ferð að reka kindurnar
Molinn kveður