Við fáum reglulega heimsókn í garðinn. Þessi gerir sér lítið fyrir og stekkur yfir girðinguna og fer sínar eigin leiðir
Hver veit nema að hún endi á þessu ef hún hættir þessu ekki.
Við vorum að kaupa okkur grill. Við vígðum það í dag og þvílíka grillið
Nú er gaman að grilla
10-406 Viðja með hrút og gimbur undan 16-573 Skála
Þetta er svakalegt lamb. Það verður gaman að sjá hvernig hann verður þegar hann kemur af fjalli í haust. Þetta er hrútur undan 15-195 Hörpu og 16-152 Hrók
Gimbrar undan 12-321 Stutthyrnu og 17-587 Daríusi
Enn eiga tvær ær eftir að bera
Það er enginn gemlingur sem gengur með tvö. Náðum að taka undan þeim og venja undir aðrar
Það eru 6 ær sem ganga með þrjú lömb
Molinn kveður