Nú er Nonni litli, sem fæddist 11 dögum fyrir tal, búinn að eignast mömmu. Þessi gemlingur missti lambið sitt í burði. Það kom afturábak og tókst ekki að fá líf í það. Nonni litli er alveg tilbúinn, orðinn hress og búinn að stækka smá. Nú fær hann sér mjólkur sopa þegar honum hentar
Þessi gemlingur hugsar vel um lömbin sín. Það er smá stærðarmunur á þeim
Flottir þrílembingar
Nú eru allar bornar sem voru á efri hæðinni í hlöðunni. Þessi hópur eru næstar sem eiga að bera, (eftir tali) og fara þangað upp
Haukur Nói kom með vinkonu sína í heimsókn til afa og ömmu. Hún hafði gaman af að sjá lömbin
Aðeins að bæta á þrílembingana
Og líka tvílembings gemlingslömbin. Það þarf að tryggja það að öll fái nóg að drekka
Það eru komin 263 lömb
Molinn kveður