Kindurnar hafa það gott. Grænt gras og rúllur
Þær dreifa sér um túnið
Svo eru líka kindur þarna við þessi fjárhús
Vá hvað það er varasamt að fljúga drónanum út af þessum fuglum. Þeir ráðast á hann. Ég er pínu smeik við það
Simmi á heiðurinn að þessu. Hann er búinn að setja upp sjálfbrynningu fyrir allar þessar einstaklingsstíur. Þvílíkur vinnuléttir að þurfa ekki að bera vatnsfötur til og frá
Þetta er algjör snilld
Nú er sauðburður kominn á seinni hlutann. Hann verður búinn áður en maður veit af
Ég er búin að sofa/vaka 21 nætur í fjárhúsunum
Lömbin eru orðin 360
Molinn kveður