Þetta litla lamb kom í heiminn í morgun. Móðirin (tvílembdur gemsi) var að láta. Þetta kom lifandi, en hitt dautt fóstur
Þetta lifði nú ekki lengi. Það lifði samt í hálfan sólahring. Það vantaði áreiðanlega marga daga upp á meðgönguna
Það var smá éljagangur annað slagið í dag. Ég held samt að það hafi ekki haft svo mikil áhrif á kindurnar. Þær fóru aðeins í skjól, en ekki lengi. Svo er að skella á blíða á sunnudaginn
Það eru rétt um 100 kindur eftir að bera. Nú verður þetta létt það sem eftir er. Það er búið að fara með kindur upp í refaskála. Nóg pláss í fjárhúsunum
Molinn kveður