Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1560
Gestir í dag: 102
Flettingar í gær: 2078
Gestir í gær: 58
Samtals flettingar: 3215334
Samtals gestir: 94950
Tölur uppfærðar: 18.3.2026 13:33:37

18.07.2020 21:01

Enginn hiti á húsinu


Við fórum í smá bíltúr í dag. Við ætluðum á Skagaströnd, en veðrið var nú ekki skemmtilegt. Við fórum í Varmahlíð og keyptum okkur ís og fórum svo til baka

Svona var veðrið. Rigning og rok

Hitinn fór af húsinu á fimmtudaginn, vegna þess að allir ofnarnir voru teknir niður. Ég veit ekki hvenær hitinn kemur aftur á. Á meðan reddum við okkur

Við erum með gasofn sem er orðinn 21 árs. Við fengum hann í brúðkaupsgjöf emoticon

Og rafmagnsblásara

Og olíuofninn sem við erum með í hjólhýsinu í fjárhúsunum yfir sauðburðinn. Við lifum þetta alveg af. Við höfum ennþá sofið inni í húsi, eins og það er. En það líður að því að við sofum í húsbílnum. Þá förum við í ferðalag. Vonandi verður veðrið betra þá emoticon





Molinn kveður




clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

14 ár

6 mánuði

4 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

11 ár

8 mánuði

6 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

4 ár

2 mánuði

4 daga

Tenglar

Eldra efni