Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 447
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 1327
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 2105214
Samtals gestir: 85619
Tölur uppfærðar: 4.6.2025 06:48:03

31.05.2025 19:05

Smá rúntur á húsbílnum

Við fórum í morgun smá rúnt á húsbílnum. Við fengum 

okkur tortilla með allskonar góðgæti með

Þórður fékk sér svið 

Svakalega góður matur

Við fórum Dalsmynni og að Illugastöðum. Við ætluðum þar

í sund, en það var ekki búið að opna. Við borðuðum 

hádegismat þar og héldum svo í Daladýrð. Við ákváðum 

svo að keyra í Stórutjarnir og ætluðum þar í sund. Það var

hinsvegar ekki opið þar. Ég var samt búin að gá á google

og þar var sagt að það væri opið. Við fengum okkur að 

drekka á Stórutjörnum og keyrðum svo heim

Græni punkturinn er Möðruvellir, séð frá Víkurskarðinu

Hér sést hvert við keyrðum

Þetta er Hlökk. Hún var sónuð geld. Við settum geldu ærnar

hjá hrút, en hún gekk aldrei hjá honum. Ástæðan er líklegast

sú, að hún hefur ekki verið geld, heldur með lambi. Hún ber

þá núna í júní

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

13 ár

8 mánuði

20 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

10 mánuði

23 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

3 ár

4 mánuði

21 daga

Tenglar

Eldra efni