Við fórum á stað í fjárrag kl. 8 í morgun. Við vorum með
hörku lið með okkur. Við rákum inn í hollum og enduðum
á að reka allt inn, klipptum klaufir og gáfum ormalyf. Við
fórum fjórar ferðir í dag og KLÁRUÐUM. Ég er svo svakalega
ánægð með daginn og innilega takk, takk fyrir hjálpina elsku
Gestur, Oddur Bjarni, Susanne, Bjössi og Damian. Við Þórður
erum svo innilega þakklát 
 |
Liðið okkar að störfum 
 |
20-522 Glósa með hrút undan 24-732 Velli og svo er hún
með gimbur sem við vöndum undir hana, undan
20-510 Tindru og 24-735 Fenox.
 |
19-470 Blæja með gimbrar undan 24-733 Púka
 |
20-514 Dendý með hrút og gimbur undan 24-731 Galsa
 |
22-012 Gorma með hrút og gimbur undan 24-732 Velli. Hún
var þrílembd og þriðja lambið, hrútur, var vaninn undir
18-410 Túlu. Gorma er einspena og lömbin eru bara flott,
þótt þau hafi bara einn spena
 |
23-052 Persía með hrút undan 24-733 Púka og hrút undan
24-074 Gátt og 24-737 Þyt, sem var vaninn undir hana, því
hún var einlembd (þessi hvíti)
 |
 |
 |
Þau eru orðin svo stór lömbin
 |
 |
 |
Þessar voru frelsinu fegnar og eru líklegast komnar inn á
Myrkárdal
 |
Hrúturinn hennar 18-409 Elízu og 23-727 Maxímus
 |
 |
Kóngurinn og drottningin. Orðin svakalega stór. Þau eru
undan 20-496 Fnjósk og 24-737 Þyt
 |
20-498 Hrifla með hrút og gimbur undan 24-731 Galsa og
21-009 Valía með hrúta undan 24-735 Fenox
 |
Þórður að fara síðustu ferðina. Já við fórum fjórar ferðir í
dag. Nú er búið að keyra þær kindur á fjall, sem eiga að fara
á fjall. Við erum með þrílemburnar, tvílembdu gemlingana
og hrútana hér heima. GÓÐUR DAGUR Í DAG 
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|