|
Meðan við vorum að gefa í fjárhúsunum, þá léku krakkarnir
sér úti. Þau voru komin í leik kl. 8 og það er sunnudagur 
Hér er Alexander búinn að gera fígúru úr snjónum
 |
|
Þessi fígúra er meirisegja með 5 tennur hjá honum
 |
|
Og þau gerðu svona stóran snjókarl
 |
|
Góð útivera hjá þeim. Eftir fjárhúsin hjá okkur, þegar við
komum heim þá héldu þau áfram að vera úti. Eftir hádegi
fórum við svo í sund á Hrafnagili, og síðan fór nafna mín
heim til sín
 |
|
Það var búið að taka blásarann af vélinni, en það þurfti að
setja hann aftur á, því það kom að því að það snjóaði
 |
|
Við mokuðum planið og stéttina um daginn. Það dugði stutt,
því það snjóaði þónokkuð í vonda veðrinu í fyrradag. Það var
aftur tekið í gegn í dag og það er alveg að verða autt aftur
 |
|
Alveg frábært að hafa tæki í þetta
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|