|
Við erum óheppin með ísskápinn. Fyrir ca. hálfum mánuði
hætti frystirinn að frysta. Við töluðum við þá sem seldu
okkur skápinn. Það tók marga daga að fá þá til að skoða
hann, og ekki kom í ljós hvað var að honum. Svo fyrir 4 dögum
hætti hann að kæla. Þá höfðum við samband aftur við þá
og það var ákveðið að við fengum nýjan ísskáp, því þessi
er bara ársgamall. Ekkert skeður ennþá og ísskápurinn er
ekki kominn. Það hlýtur að vera svona langt frá Reykjavík
til okkar, því það hefur tekið nokkra daga og ekki kominn
ennþá
 |
|
En við erum heppin með veðrið. Ekki væri gott ef það væri
frost og ekki væri heldur gott ef það væri 20 stiga hiti, því
við verðum að hafa allt sem var í ísskápnum úti á palli. Það
er um 3 stiga hiti úti. Sami hiti og ég var með í ísskápnum.
Vonandi kemur nýr ísskápur á morgun
Molinn kveður
|
|