Jæja nú er fyrsti í aðventu. Við Þórður skreyttum í Lyngbrekku um síðustu helgi. Við settum ljós hringinn á bæði húsin, flaggstöngina og svo settum við jólatréð í brekkuna. Í gær þá gerðum við enn meira. Við settum seríu allan hringinn á pallinn, og yfir hliðið og alveg á sturtuvegginn og grindverkið hjá pottinum. Það er semsagt komið allann hringinn.
Það var nú ekki fögur sjón að sjá þegar ég opnaði vaskaskápinn okkar. Við erum komin með gesti þar. Búið að tæta niður svampa sem voru þar og músaskítur mikill. Við verðum að passa að þessi skápur sé lokaður, því þá komast þær ekki inn í húsið. Við gerum nú eitthvað í þessu strax í dag. En þegar við vorum búin að skreyta, þá borðuðum við alveg dýrindis máltíð. Kjöt í raspi. Þegar við sátum þarna við borðið, þá kom einn gestur á gluggann. Það var ein stór mús sem sat á gluggasyllunni og horfði á okkur. Ég held að hún hafi verið að vonast eftir matarboði. Það er semsagt mikill músagangur í Lyngbrekku. Við verðum að splæsa í eina músafælu og hafa í gangi inni í húsi.
Molinn kveður.
