Jæja nú er fengitíminn á enda kominn. Hrútarnir verða teknir úr á morgun. Nú er staðan þessi, á þeim sem við erum búin að sjá ganga. Tal dagur :
27. apríl 13 stk. + 1 stk. frá Rauðalæk
28. apríl 4 stk.
29. apríl 5 stk. + 2 stk. frá Rauðalæk
30. apríl 2 stk. + 2 stk. frá Rauðalæk
01. maí 5 stk. + 1stk. frá Rauðalæk
02. maí 7 stk.
03. maí 5 stk. + 1 stk. frá Rauðalæk
04. maí 6 stk. + 2 stk. frá Rauðalæk
05. maí 3 stk.
06. maí 5 stk. + 1 stk. frá Rauðalæk
07. maí 4 stk. + 2 stk. frá Rauðalæk
08. maí 1 stk. + 2 stk. frá Rauðalæk
09. maí 1 stk.
10. maí 5 stk.
11. maí 6 stk. + 1 stk. frá Rauðalæk
14. maí 1 stk. + 2 stk. frá Rauðalæk
15. maí 3 stk.
16. maí 1 stk.
17. maí 1 stk. + 1 stk. frá Rauðalæk
22. maí 1 stk. frá Rauðalæk
23. maí 1 stk.
25. maí 1 stk. frá Rauðalæk
28. maí 1 stk. frá Rauðalæk
Það eru þrjár sem við höfum ekki séð ganga hjá okkur, og 6 frá Rauðalæk. Sauðburður mun standa yfir í heilan mánuð. Ég semsagt á eftir að sofa í hjólhýsinu í heilan mánuð í vor. Ég slæ líklegast fyrri met í því 




Eins og ég sagði þá er þetta talið á kindunum, og þessar sem við höfum ekki séð ganga, eiga eftir að detta inn á einhverja af þessum dögum. Ég vona allavegana að þær séu ekki geldar. Ég vona svo að þetta breytist ekki til morguns, að engin verði að ganga, því hrútarnir verða teknir úr þá. Ég var búin að setja inn (28.des.) fyrstu 8 dagana, og þeir hafa ekkert breyst.
Svona er nú æsingurinn í mér í þessum kindum okkar. Ég ætlaði nú að byrja skrifin mín hér, á því að óska öllum, sem heimsækja þessa síðu mína, gleðilegt ár og þakka fyrir árið sem nú er liðið. Ég vona að árið sem byrjað er, verði ykkur gott.
Nú er allt komið í rétta rútínu aftur. Allt frí búið. Já og Friðrik og co., og Sigurjón og co., öll farin suður. Ég er nú þegar farin að sakna þeirra Dags Árna og Jökuls Loga, ömmugullin mín. Við fengum að hafa þá eina nótt, og svo fengum við þá líka, í nokkur skipti, með okkur í sveitina. Þetta var allt of stuttur tími með þeim. En þeir koma vonandi fljótlega aftur.
Svo á ég nú fleiri ömmugull sem komu ekki norður um jólin, og sakna ég þess mjög. Vonandi sé ég þau, Árdísi Marín, Kristófer Daða, Ísabellu Maríu og Einar Breka, fljótlega.
Níels og Siggi voru hjá okkur um síðustu helgi, og næstu helgi koma þeir Júlli og Einar.
Nú er myndataka af kindunum að verða búin. Ég á bara eftir að taka myndir af fjórum hrútum, sem koma á morgun til okkar. Tveir af okkar hrútum, sem eru búnir að vera í láni, og svo tveir hrútar frá Rauðalæk. Ég kem svo myndunum hér inn á næstu dögum.
Nú er ég farin að bíða spennt eftir fósturtalningu sem verður í febrúar
Ég vona að hún komi vel út.
Nú er manndrápsfæri úti, og ætla ég svo innilega að vona, að það verði 10 stiga hiti í 10 daga, svo þessi klaki fari. Það er ekki stætt, nema á mannbroddum.
Molinn kveður.