Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 4928
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 7715
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 1844741
Samtals gestir: 82546
Tölur uppfærðar: 2.4.2025 06:33:35

Færslur: 2016 Ágúst

13.08.2016 19:22

Myndirnar komnar upp á vegg

Þá er nú loksins búið að festa myndaspjöldin upp á vegg. Ekki seinna vænna, lömbin koma heim eftir ca. mánuð. Það eru margir dagar síðan við prentuðum þau út, en vorum bara ekki búin að koma því í verk að setja þau upp á vegg. Nú þarf maður ekki að kveikja á tölvunni þegar skoða á lömbin, heldur bara skoða spjöldin á veggnum emoticon


Stolt kellan með vegginn, já og bolinn emoticon


Það er búið að vera líf og fjör hjá okkur. Við fengum að hafa öll ömmu og afa börnin í viku heimsókn. Yndisleg gull. Þau eru öll farin heim núna og það er frekar tómlegt í húsinu. Bara við hjónin og tveir guttar.


Ég er heppnasta manneskja í heimi. Þessi fallega fjölskylda, sem samanstendur af dóttur minni, tengdasyni og tveim ömmugullum, voru að flytja norður emoticon Það er svo æðislegt að vera með þau svona nálægt. Við fórum nánast aldrei í heimsókn til þeirra suður, en nú fá þau ekki frið fyrir mér haha


Við förum annaðslagið á kindarúntinn

Þessi fallega gimbur er fjórlembingur undan Brák og Eitli




Ég held að kindurnar haldi að haustið sé komið. Í þessum kindarúnti í dag sáum við mjög margar kindur sem við eigum. Ég held að ég hafi aldrei séð svona margar kindur á rúntinum


Þessi gimbur er undan Ófeig og Bekra


Krumma með tvo hrúta undan Þyt


Viðja með gimbur og hrút undan Laxa


Fallegar gimbrar (þrílembingar og hún gengur með þau öll) undan Viktoríu og Eitli. 

Það verður gaman að sjá alla hjörðina í haust. Bara mánuður í það.

Ég fer fljótlega á rúntinn aftur emoticon


Molinn kveður



  • 1


clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

13 ár

6 mánuði

18 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

8 mánuði

21 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

3 ár

2 mánuði

19 daga

Tenglar

Eldra efni