Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 506
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 3487
Gestir í gær: 488
Samtals flettingar: 920256
Samtals gestir: 48913
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 22:12:49

18.03.2023 16:25

Útivera

Morgunmatur

Við fengum nýjan vinnumann um helgina

Þegar einn fer (Alexander), koma tveir í staðinn. Flottir 

vinnumenn um helgina

Þessir tefldu nokkrar skákir. Mjög sáttir

Það snjóaði í logni

Við fórum út að leika og snjósleðinn kom að góðum notum 

 

Þeir skiptust á að keyra sleðann og allir ánægðir

 

 

Góð og löng útivera í dag

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

17.03.2023 18:45

Styttist í sauðburð

Sauðburður hefst 1. maí

Fyrsta daginn, 1. maí eiga 7 ær tal. Af þeim eru 4 þrílembur

og 3 tvílembur. Það eru líka tveir gemlingar sem eiga tal

þennan dag. Önnur er einlembd og hin tvílembd

 

2. maí er bara ein ær og einn gemlingur sem eiga tal og þær

eru báðar tvílembdar

 

3. maí eiga 12 ær tal og af þeim eru 3 þrílembur, 6 tvílembur

og 3 einlembur. Það verður vonandi hægt að venja undir 

þessar þrjár einlembur. Það verður allavega nóg til af 

lömbum til að venja undir. Það er líka einn gemlingur sem 

á tal þennan dag og hann er tvílembdur

 

Já það styttist í sauðburð smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

16.03.2023 19:02

Fjárhúslíf

Þrílemburnar eru að verða þungar á sér

Við vorum heppin að hafa látið klippa snoðið af þeim, þegar

hitinn var. Núna er búið að vera frost og það mikið frost í

marga daga. Þær eru orðnar loðnar og þeim verður ekki kalt

Alltaf svangar, eða þær þykjast vera það smiley

Við erum með allt lokað í þessum kulda. Þá alla glugga og 

líka hurðirnar inn í hlöðu

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

15.03.2023 19:42

Fuglar

Gaman að fylgjast með þessum fuglum í garðinum okkar. 

Þeir koma á hverjum degi til að fá sér í gogginn

 

 

 

 

 

Það koma líka mýs í fuglamatinn. Ég hef samt ekki séð neina

mús, bara sporin eftir hana

Við settum þessar geldu (tvær ær) hjá hrút, 27. febrúar.

Ein  einlemban lét 5. mars. Við settum hana hjá þessum geldu

8. mars.

13. mars voru tvær að ganga. Þessi sem lét og önnur þessi

gelda. Nú er spurning hvort þær koma með lömb 3. ágúst.

Það er betra en ef þær kæmu með lömb í september

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

14.03.2023 18:50

Útivistardagur Þelamerkurskóla, í Hlíðarfjalli

Já það var útivistardagur hjá Þelamerkurskóla í dag og

drengirnir okkar klárir í fjallið

Veðrið var allskonar. Það var kalt, snjókoma og sól 

Sólin að brjótast í gegn og vá hvað hún er farin að hita

Það voru grillaðar pylsur í hádeginu og þá kom snjókoma

Það var frekar kalt að borða pylsu, en fólkið lét það ekki 

á sig fá

Mikil snjókoma

Grillað í snjókomu

Svo allt í einu kom sól

 

Góður útivistardagur smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

13.03.2023 20:10

Skíðaskólinn, dagur þrjú

Þriðji dagurinn í skíðaskólanum var í dag. Þetta er bretta 

hópurinn, blái

Guli hópurinn

Rauði hópurinn

Græni hópurinn

Það var bara ágætis veður. Sólin var að reyna að brjótast í

gegnum skýin. 

Á morgun verður útivistardagur Þelamerkurskóla og þá 

fara allir nemendur og starfsfólk skólans í fjallið

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

12.03.2023 19:16

Skákþing Akureyrar seinni dagur

Damian tók þátt í mótinu aftur í dag og þetta er lokastaðan

 

Krakkarnir sem mættu á mótið í dag smiley

Veðrið var alveg svakalega flott í dag

Sól, en frekar kalt. Frostið fór í 19 stig kl. 2 í nótt

 

 

Strákarnir í snjókasti

Í 10 stiga frosti. Það virkaði nú ekki kalt miðað við það þegar

það er um 20 stiga frost

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

11.03.2023 18:44

Skákþing Akureyrar

Ég grillaði í dag í 10 stiga frosti. Ég held að ég hafi nú bara

aldrei borðað svona góðar grillsneiðar. Kannski er það 

kuldanum að þakka smiley

Damian á skákþingi Akureyrar. Fjórar umferðir í dag og þrjár

á morgun. Staðan er þessi eftir daginn í dag

 

Möðruvallakirkja

Það er ekki lengur auð jörð

Komin smá föl yfir allt

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

10.03.2023 19:24

Rútuslys

Bubbi og strákarnir í körfuboltanum hjá Þór, lögðu af stað

í morgun, í keppnisferð til Reykjavíkur. Ferðin endaði nánast

áður en hún byrjaði. Til allra hamingju varð ekki alvarlegt 

slys heart

 

 

 

 

Þetta hefði getað farið verr heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

09.03.2023 19:50

Skíðaskóli dagur 2

Ég fór í fjallið í dag. 1. - 4. bekkur Þelamerkurskóla var í

skíðaskólanum. Veðrið var allskonar í dag

Meðal annars sól

Græni hópurinn

Svo var mikil snjókoma

 

Krakkarnir stóðu sig vel á skíðum/bretti

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

08.03.2023 18:09

Skíðaskóli, dagur eitt

Ég frétti að þessir gullmolar (ömmu gull) yrðu í fjallinu í dag.

Það var útivistardagur hjá Hrafnagilsskóla og þeir eru í þeim

skóla. Ég ákvað að fara og hitta þá þar, því ég var hvort eð er

að fara í fjallið þar sem 1. - 4. bekkur Þelamerkurskóla fóru í

skíðaskólann.  

Ég var mætt uppúr kl. 10 og var með þeim, ömmu gullunum,

þangað til Þelamerkurskóli mætti. 

Alexander mættur í fjallið og fór í græna hópinn

Svona skyggni var í morgun, en svo breyttist það og varð

bara í góðu lagi

Rauði hópurinn

Blái hópurinn (bretti)

Guli hópurinn

Græni hópurinn

Góður dagur í fjallinu í dag

 

Þetta er áttunda árið sem ég tek þátt í skíðaskólanum (hjálpa

krökkunum í skíðaskó og í skíðin, til að þau komist sem fyrst

í kennsluna).

Þelamerkurskóli býður krökkunum í 1. - 4. bekk skíðakennslu

í fjóra daga. Í framhaldi af þeim dögum, þá er útivestardagur 

og þá fara allir nemendur og starfsmenn skólans í fjallið. 

Algjör snilld hjá flottum skóla smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

07.03.2023 19:09

Kindur

22-020 Skel.  Þessi mynd er tekin 13. október '22

Og þessi mynd af Skel er tekin í dag, 7. mars. Hún er komin 

með hornahlaup. Gimbrarnar eru orðnar mjög þroskaðar

Skel

22-025 Monika

18-393 Klanka

15-215 Þerna

16-291 Rakel

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

06.03.2023 18:55

Smá útivera

Smá útivera og göngin skoðuð

 

Tveir í útiveru

Sólin að brjótast í gegn

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

05.03.2023 18:23

Fuglar

Stararnir komnir í heimsókn í garðinn okkar

Þeir hópuðust saman til að éta eitthvað sem þeir fundu. Ég

veit ekki alveg hvað það var

Þeir voru líka við bílskúrinn, að éta eitthvað þar

Ég er búin að gefa þeim epli, brauð, fitu og korn

 

 

Þeim finnst eplin góð

 

Allar myndirnar af Staranum tók ég hér út um glugga

Svartþrastarkerling sem ég hitti í Lystigarðinum

 

Auðnutittlingur í Lystigarðinum í dag

Vinnumennirnir okkar

Síðasti snjórinn í garðinum. Það breytist nú á næstu dögum

Flugvél sem sveif yfir okkur á Akureyri í dag

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 
 

04.03.2023 19:00

Sextugsafmæli

Við fórum á Sauðárkrók í dag, í sextugsafmæli hjá mági 

mínum

Þessi eðal drengur verður 60 ára 7. mars. Hann bauð í

dýrindis veislu í dag. Til hamingju með stórafmælið 

Einar minn og takk fyrir okkur í dag heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður 

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

7 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

9 ár

9 mánuði

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

3 mánuði

13 daga

Tenglar