Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 444
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 3487
Gestir í gær: 488
Samtals flettingar: 920194
Samtals gestir: 48911
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 19:40:27

28.12.2023 21:03

Útivera

Damian að draga Alexander

Og svo kom Leó og Damian dró þá báða

 

Þetta fannst þeim skemmtilegt

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

27.12.2023 19:16

Hrútarnir teknir úr gemlingunum

Við endurröðuðum í fjárhúsunum. Við settum allar ærnar í 

fjórar krær og þurfum því ekki að gefa nema á tvo garða. Við

tókum hrútana úr gemlingunum og nú eru bara fjórir hrútar

hjá ánum, einn í hvorri kró

Það var ein ær að ganga þegar við endurröðuðum

 

Litlu krúttin halda áfram að koma til okkar

 

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

26.12.2023 20:02

Fallegar jólagjafir

Við fengum margar fallegar jólagjafir. Hér koma nokkrar af

mörgum fallegum gjöfum

Við fengum þetta fallega skilti, frá Guðrúnu dóttir okkar og

fjölskyldu. Þetta ætlum við að setja upp á húsið okkar heart

Guðrún plataði pabba sinn. Hún gefur honum jóla bindi

hver einustu jól. Í ár setti hún stein í pakkann svo hann 

mundi ekki fatta að þetta væri jóla bindi. Sniðug smiley

Og við fengum viðbót í þetta fallega safn. Nú er nafna mín

mætt í safnið

Þetta finnst mér fallegt jólaskraut heart

Við fengum þennan fallega jóladúk, frá Maríu dóttur Þórðar

og fjölskyldu. Hún prjónaði hann. Mjög fallegur dúkur heart

Við fengum saltlampa frá fjölskyldunni Vöglum. Mér finnst

þessir lampar svo fallegir heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

25.12.2023 20:01

Jóladagur

Hangikjöt á Jóladag. Við vorum bara fjögur 

Simmi að blása. Það kom smá snjór í nótt

Við tókum snjósleðann út í morgun. Það verður eitthvað 

hægt að leika sér á honum næstu daga

Ég fór á sleðanum upp í fjárhúshólf. Allt nánast hvítt

Það snjóaði annað slagið í dag

Snjósleðinn í notkun

 

 

Það var orðið vont skyggni vegna snjókomu. En alltaf gaman

í útiveru

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

24.12.2023 19:53

Aðfangadagur

Möndlu skyrið borðað. Við setjum möndlu í skyr í staðin fyrir

grjónagraut. Alexander fékk möndluna

Við fórum svo í kirkjugarðinn með greinar og kveiktum á 

kertum

 

 

 

Ömmu gullmolar heart

Og "ömmu" gullmolar

 

Leiðin eru orðin 5

 

 

 

 

 

Féð fékk sína tuggu smiley

 

Og jólin gengu í garð.

Gleðileg jól mínir síðuvinir heart

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

23.12.2023 19:52

Tröpputréð skreytt

Við skreyttum tröpputréð í dag. Gísli í Dagverðartungu gaf

okkur þetta tré

Við fengum þessa flekkóttu kind að gjöf frá Oddi Bjarna og

fjölskyldu. Aðalheiður S. Eysteinsdóttir bjó hana til. Þetta er

mjög flott kind. Takk elsku vinir fyrir heart

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

22.12.2023 21:10

Jólatréð skreytt

Strákarnir skreyttu jólatréð í dag

Mjög flott hjá þeim

 

Við kláruðum líka að skreyta stofuna

 

 

Allt klárt fyrir jólin

Ingi Rúnar tók þennan bíl aftur í gegn. Hann verður hreinn

og fínn um jólin

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

21.12.2023 16:12

Kötturinn náðist í búr

Þessi köttur er búinn að vera hér hjá okkur, alltaf annað 

slagið í, ja, tvö til þrjú ár. Við sáum alltaf för í snjónum, en

vorum að öðru leiti ekki vör við hann. Við ákváðum að tala

við Ragnheiði Gunnarsdóttur í Kisukoti og fá lánað fellibúr

til að veiða hann. Hann lét sig þá hverfa í nokkra daga, kom

svo aftur og við náðum honum loksins í búrið. Við fórum með

hann til Ragnheiðar og hún er búin að auglýsa hann á fb. síðum

en enginn hefur gefið sig fram sem eiganda hans. Hann er 

búinn að vera svo lengi á flakki að hann er orðinn að villiketti.

Ef einhver kannast við kauða, þá er hægt að hafa samband

við Ragnheiði

Hræddur köttur

Jæja loksins kom aðeins snjór. Blásarinn fékk eitthvað að

gera. Það verða allavega ekki rauð jól

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

20.12.2023 17:50

Jólaball

Í dag var jólaball hjá strákunum, í skólanum. Nú eru þeir 

komnir í jólafrí, til 4. janúar

Flottir strákar

Þeir bökuðu piparkökur eftir skóla í dag

 

Flottar kökur hjá þeim

Ég bakaði eina plötuna aðeins of lengi, en góðar eru þær

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

19.12.2023 20:20

Glitský

Glitský í morgun

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nokkrar ær gengu upp, frá fyrsta deginum. Kannski eins gott,

því það voru 38 ær sem gengu fyrsta daginn. Þær eru komnar

niður í 22. Við erum með dagsetningu á öllum nema einni smiley

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

18.12.2023 18:04

Mömmukökur

Ég setti krem á kossana

Og meira baka ég ekki fyrir jólin

Og áfram koma fuglarnir í garðinn

 

 

 

Gaman að fylgjast með þeim

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

17.12.2023 09:13

Flottur Damian

Enn eitt árið fékk Damian viðurkenningu fyrir framúrskarandi

ástundun í skákinni

Svo stolt af honum

Jæja þá er það mömmuköku bakstur. Eins og ég sagði í gær,

þá keypti ég 6 plötur hjá Blikkrás. Ég gerði tvær uppskriftir

og gat gert allar kökurnar og sett þær á plöturnar. Þegar ég 

var búin að gera þær, þá byrjaði ég að baka

 

Ég setti 5 plötur í ofninn í einu

Ég var fljót að baka núna smiley

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

16.12.2023 16:40

Vinnubíll

Þennan vinnubíl erum við búin að kaupa. Þetta er svona

hálfgerður buggybíll með palli

Þórður keyrði hann heim og bauð tveim guttum með sér

Þeir voru ánægðir með ferðina. Æðislegur bíll. Við fórum á

honum upp í fjárhús þegar við fórum að gefa seinni gjöfina

Flottir bílar smiley

Það var glitský á himni í morgun

 

Möðruvallakirkja undir logandi himni

Ég henti í tvær uppskriftir af mömmukökum, í dag. Ég keypti

6 bökunarplötur hjá Blikkrás. Þeir smíða plötur eftir máli.

Þvílíkur munur að baka þegar maður er með svona margar

plötur. Tekur enga stund smiley

Mömmukökur

Búin að setja krem á milli og já þær eru góðar. Ég ætla að 

baka tvær uppskriftir í viðbót fyrir jól

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

15.12.2023 19:31

Kósýdagur í skólanum

Í dag var kósý/náttfatadagur í skólanum. Drengirnir okkar 

fóru í kósýgöllum heart

Það kom smá vetrar-skot í nótt. Ekki mikið samt, bara til að 

minna á veturinn

Þessi ömmu og afa gullmoli kom til okkar í dag og ætlar að

gista tvær nætur hjá okkur heart Maxímus fékk knús og klapp

frá honum

Auðvitað gaf amma honum steiktar bollur. Honum finnst 

þær svo góðar

Alexander var ánægður að fá vin sinn í heimsókn

Góðir vinir

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

14.12.2023 18:54

Klár í veturinn

Þessi er klár fyrir veturinn, ef hann þá kemur. Hann er ekki

kominn ennþá. Að vísu er búið að vera kalt, en enginn snjór.

Þetta veðurfar sem búið er að vera hefur stytt veturinn mikið.

Ingi Rúnar er búinn að taka þennan blásara í gegn. Hann er 

búinn að lakka hann allan nema snigilinn smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

7 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

9 ár

9 mánuði

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

3 mánuði

13 daga

Tenglar