Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 736
Gestir í dag: 69
Flettingar í gær: 588
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 921074
Samtals gestir: 48983
Tölur uppfærðar: 28.4.2024 15:29:57

03.03.2023 19:03

Krossnefur

Ég náði mynd af þessum fuglum í dag, Krossnef. Þessi

appelsínuguli er karlfugl

Og þessi grái er kvennfugl. Ég held það allavega

Krossnefur (karlfugl)

Krossnefur (kvennfugl)

Þessi Auðnutittlingur var að spá í hvað ég væri að gera

Glókollur. Enn næ ég ekki góðri mynd af honum. Hann er

með svo snöggar hreyfingar, að það er erfitt að sjá hann

Glókollur

Auðnutittlingur

Svartþrastarkerling

 

Smá flug í dag. Allt snjólaust. En það breytist nú um og eftir

helgi

 

 

 

Já allt snjólaust

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

02.03.2023 17:12

Gemsar með þrjú

22-021 Kotra er með þrjú

22-019 Krukka er líka með þrjú

Stari í garðinum okkar

Auðnutittlingur líka í garðinum hjá okkur. Hann er merktur, en

ég næ ekki að lesa á merkið

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

01.03.2023 19:01

Lambamerki

Einu sinni var hægt að kaupa blöðkumerki (lambamerki) hjá

Plastiðjunni Bjargi. Við notfærðum okkur það. Þeir hættu svo

með þessi merki þannig að við þurftum að skipta yfir í þessi

litlu merki. Það kostar það að það þarf svona nánast að taka

og skoða merkið í eyra lambsins á haustin þegar verið er að 

vigta, til að sjá númerið í lambinu

Við ákváðum að fara okkar eigin leiðir í þessum málum og

keyptum fullorðinsmerki sem ekki var búið að prenta á, 

klipptum neðan af þeim og skrifuðum númerið á þau. 

Blöðku merkin fara í hægra eyrað á lambinu, en litlu merkin

(þessi fyrir ofan) fara í vinstra eyrað. Bæjarnúmerið er á 

litlu merkjunum. Það verður allt annað að vinna við vigtun

á lömbunum í haust  

Hér sést munurinn á merkjunum. Þessi í miðjunni eru heil, 

en þessi til hliðar eru orðin styttri

Hér sést þetta aðeins betur

Ég held að þetta verði algjör snilld smiley

Ég fór í Lystigarðinn í dag og tók þessar myndir af Svartþresti

Karlfugl

Svo fallegur

Og ég held að þetta sé kvennfugl

Svartþrastarkvennfugl

Svo fallegur fugl

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

28.02.2023 19:05

Vorveður í lofti

Hann hefur nú oft verið stærri, skaflinn, sunnan við hlöðuna.

Núna er þetta bara smá snjór sem eftir er. Þegar hann er 

farinn, þá þornar allt við fjárhúsin smiley Það er heldur ekki mikill

snjór í fjallinu smiley

Fjárhústúnið orðið autt, nema þarna neðst. Þar er smá

tjörn sem hlýtur að fara að hverfa smiley

 

Það var svo mikið vorveður í dag, 10 stiga hiti smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

27.02.2023 19:57

Flokka ær

Himininn í morgun

Við tókum þrílemburnar og settum þær saman, í sitthvora

króna. Hyrndar saman og kollóttar saman

Við tókum líka þessar tvær geldu ær og settum þær hjá hrút.

Já smá tilraun að sleppa við haustlömbin. Það er þá betra 

að þær beri í sumar en í haust

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

26.02.2023 18:49

Snoðið tekið af

Unnar kom og tók snoðið af kindunum. Við vorum með 

góða vinnumenn í dag og þetta tók ekki langan tíma

Já þetta gekk hratt fyrir sig smiley

Gimbrarnar bíða eftir snyrtingu. Þessi hvíta vinstramegin og

þessi móflekkótta eru með þrjú lömb

Gimbrarnar

Smálömbin

Mislitu ærnar

Hvítu ærnar

Himininn í morgun

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

25.02.2023 20:17

Ferð til Ólafsfjarðar

Í morgun

Við vorum með einn flottan vinnumann með okkur í

fjárhúsunum í morgun. Hann var duglegur að hjálpa okkur

Við fórum til Ólafsfjarðar í dag. Það er mikill snjór á leiðinni

þangað. Allt autt heima, en mikill snjór á Dalvík og Ólafsfirði

Dalvík

 

Kleifar í Ólafsfirði

Við heimsóttum þennan hressa og flotta 94 ára frænda

Þórðar. Hann er alveg ótrúlegur og svo flottur heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

24.02.2023 19:55

Tunglið

Tunglið í kvöld

 

Starinn mættur í garðinn

 

Þeir gæða sér á eplum og fuglamat

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

23.02.2023 20:17

Fuglar í garðinum okkar

Það komu nokkrir Starar í garðinn í dag

Ég gaf þeim epli og þeir voru mjög gráðugir 

 

 

 

 

 

Það er svo gaman að fylgjast með þeim. Ég tók þessar myndir

út um stofugluggann (gegnum glerið) 

Stari

Auðnutittlingur

 

Snjótittlingur

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

22.02.2023 19:10

Styttist í vorið

Það er enn svona snjólítið. Það er hláka á leiðinni og þá

hverfur þetta lítilræði sem er

Ég veit ekki alveg hvað er í gangi hjá þessari. Ég held að hún

hafi verið of gráðug smiley

Nóg af heyi í garðanum og þær að springa af áti. Sjáum til

hvað verður mikið eftir í fyrramálið. Þær éta ótrúlega mikið

yfir sólahringinn

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

21.02.2023 19:18

110 km. hraði

Þegar maður keyrir til Akureyrar, þá sýnir bíllinn að maður

megi keyra á 110. Það er nú ekki alveg rétt hjá honum smiley

Þetta kemur annað slagið svona. Þetta var þannig í fyrradag.

Ég notfærði mér það nú ekki. Þetta er svona hjá gömlu

Húsasmiðjunni. 

Það styttist í að snoðið verði tekið af. Það verður gert um

helgina

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

20.02.2023 19:20

Stari í baði

Þessi Stari kom í garðinn okkar í dag

Hann tók sig til og baðaði sig hátt og lágt. Hér koma nokkrar

myndir af baðinu hans

 

 

 

 

 

 

 

Snjótittlingur

Allar þessar myndir tók ég út um stofugluggann

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

19.02.2023 16:53

Enn og aftur í fjallið

Í Hlíðarfjall í dag, með þessum

Það voru ekki margir í fjallinu

 

Við þetta skilti stóð ég í þrjá klukkutíma í dag. Já ég er tilbúin

með nestið ef einhver er svangur eða þyrstur. Það var mjög

góð ending á þeim í dag að vera í þrjá tíma á skíðum/bretti. 

Flottir strákar heart

Ég setti upp húfuna góðu, þó mér líki ekki að vera með húfu

á hausnum

Verið að næra sig

Þeir fóru allir í stólalyftuna núna. Þvílíka framförin hjá þeim.

Eins og ég segi, þá eru þetta flottir drengir heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

18.02.2023 18:50

Hlíðarfjall í dag

Með þessum í Hlíðarfjalli í dag

Veðrið var gott og þessi klár í brekkurnar

Og þessi er alveg að verða klár í brekkurnar

Það eru miklar framfarir á brettinu hjá Bubba

Smá biðröð við diskalyftuna

Og líka við stólalyftuna

Snjóblásari tilbúinn eftir lokun í fjallinu

Þeir prufuðu kaðallyftuna og það gekk vel hjá þeim

Damian tók þátt í mánaðarmótinu í skákinni, í dag

Það gekk vel hjá honum. Hann vann 4 af 6

 

Ég fór í Lystigarðinn í dag, aðalega til að leita að Glókolli. Hér 

er Auðnutittlingur

Ég fann Glókoll, en hann var svo snöggur í hreifingum að

það var erfitt að ná mynd af honum. Ég þarf að fara aftur

og reyna betur

Þessi mynd væri fín ef hún væri í fókus. Reyni aftur seinna

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

17.02.2023 18:15

Hlíðarfjall

Það er frekar snjólétt, já eða bara alveg autt smiley

Skólinn búinn snemma í dag og þá er gott og gaman að fara

í fjallið

Það er líka snjólétt í Hlíðarfjalli

 

Já frekar snjólétt. En fallegt var veðrið

 

Takið eftir húfunni sem ég er með á hausnum. 21E07 smiley Ég

er ekki oft með húfu, en ég var í klippingu í dag og er ekki

með mikið hár á hausnum núna cool

Já fallegt er það

 

Bubbi á bretti

Alexander á skíðum

Og Damian á skíðum

 

Gott veður og góður dagur í fjallinu í dag

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

7 mánuði

14 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

9 ár

9 mánuði

16 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

3 mánuði

14 daga

Tenglar