Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1649
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 1871
Gestir í gær: 15
Samtals flettingar: 3482716
Samtals gestir: 95927
Tölur uppfærðar: 17.5.2026 13:26:34

02.02.2015 16:00

Síðan mín, loksins komin í lag

Síðan er búin að vera í rugli í nokkra daga, en er að verða komin í lag.

Ég er búin að setja inn nokkur myndaalbúm. Þar á meðal breytingar á baðherberginu. Það er komin viku pása í vinnu við það, vegna þess að veggflísarnar sem við ætlum að nota, eru ekki til í landinu, en koma í vikulok. 
Ég bæti svo inn myndum í breytingar albúmið þegar framkvæmdir halda áfram.


Við notumst við þessa græju, til að sturta okkur, meðan verið er að vinna í breytingunni. Þessi sturtugræja er staðsett í þvottahúsinu og það er bara fínt að fara í sturtu þar. Allavegana sættum við okkur við það á meðan emoticon

Nú styttist óðum í fósturtalninguna. Hún verður um miðjan febrúar. Ég bíð spennt emoticon

Við tókum hrútana úr fénu, 31. janúar. Þeir voru nú bara spakir þegar þeir hittust allir. Ekki mikið um slagsmál.


Það var gaman hjá stuðningsstrákunum okkar í gær. Þórður dró þá, á sleðum, á fjórhjólinu. 


Þessir voru að nota góða veðrið á laugardaginn, á Möðruvöllum,  til að leika sér á skíðum og bretti. Þeir skíðuðu um túnin og höfðu gaman af. Það var gaman að fylgjast með þeim.


Molinn kveður.






clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

14 ár

8 mánuði

3 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

11 ár

10 mánuði

5 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

4 ár

4 mánuði

3 daga

Tenglar

Eldra efni