Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1741
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 4482
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 3420392
Samtals gestir: 95664
Tölur uppfærðar: 10.5.2026 12:02:50

09.05.2026 15:49

Nú hefst myndataka af lömbunum

Við settum fleiri lambær út í morgun. Veðrið í dag er búið

að vera gott, en frekar kalt í forsælu. Sólin yljar. Það fer

vel um ærnar og lömbin í dag. Vonandi verður ekkert úr

þessari rigningarspá sem er í vændum

20-521 Offa með þrjár gimbrar undan 24-731 Galsa. Vonandi

eru þær með verndandi arfgerð

19-444 Höpp með gimbrar undan 25-740 Þræði

23-049 Hekla með hrút og tvær gimbrar undan Þræði

24-063 Hneta með hrúta undan 24-733 Púka

18-402 Rikka með gimbrar undan 25-745 Aragon

Þær eru mikið á beit. Þyrftu að vera duglegri að éta úr

rúllunum sem þær hafa aðgang að

Hrútur undan 23-049 Heklu og 25-740 Þræði

Hrútar undan 24-076 Rist og 25-738 Max

Ég sagði í bloggi í gær, að það væru 3 eftir hjá okkur. Það 

bættist ein við, gemlingur sem við héldum að hefði látið.

Það er að koma undir hana, þannig að hún á tal 12. maí.

Það bar svo ein í dag. Við eigum þá eftir þrjár eftir sem

áður. Gestur vinur okkar á eina sem á eftir að bera. Nú

eru tvær á tali 10. maí og tvær 12. maí. Þetta er alveg að

klárast

Á myndatöku minni í dag, rakst ég á þennan fugl. Þetta er

Steindepill. Hef ekki áður séð hann hér. Að vísu fann ég einn

dauðan Steindepil í vetur hér fyrir utan húsið. Gaman að

fá nýjar fuglategundir hér

 

 

Molinn kveður

 

 


clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

14 ár

7 mánuði

26 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

11 ár

9 mánuði

29 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

4 ár

3 mánuði

27 daga

Tenglar

Eldra efni