Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 218
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 3966
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 3422835
Samtals gestir: 95675
Tölur uppfærðar: 11.5.2026 01:25:17

10.05.2026 20:13

Lilla litla

Þessi litla gimbur kom í heiminn, búin að vera í algjöru

hnipri í mömmu sinni. Þrílembingur og er lang minnst.

Hún var varla á lífi greyið þegar hún fæddist. Svo fór hún

svona. Gat ekki staðið. Fór bara í spíkat

 

Þórður ákvað að taka sokk, klippa af honum og setja á 

fæturnar á henni. Hann setti bæði fyrir ofan hné og neðan,

á framfótunum

Og svo fyrir ofan hæklana á afturfótunum

Og viti menn, hún getur staðið og gengið

Æi elsku dúllan. Ég er búin að gefa henni mjólk í slöngu, því

hún hefur ekki getað sogið. Svo í dag, þegar hún fór að labba,

þá byrjaði hún að sjúga pela og reyna að sjúga mömmu sína.

Þá var nú mamma hennar ekki glöð og stangaði hana bara.

Skrýtið þar sem Lilla litla er búin að vera allan tímann hjá 

henni. Það er svona með sumar ær, að þegar lömbin eru

ekki að sjúga strax, þá vilja þær ekki lömbin sín. Hún er 

með tvö lömb og við venjum Lillu litlu undir eina einlembu

sem á tal í dag og ber þá á næstunni. En gaman að hún 

Lilla litla ætlar ekki að gefast upp. Hún fæddist 7.maí

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

14 ár

7 mánuði

27 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

11 ár

9 mánuði

30 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

4 ár

3 mánuði

28 daga

Tenglar

Eldra efni