Góðan dag hér !
Jæja nú á ég sjötugan afmælispabba í dag. Það verður mikil veisla á morgun, og mikið af góðu fólki sem kemur saman. Guðrún Helga kemur í dag og verður hér um helgina. Pála og Gulli koma líka og verða hjá okkur.
Nú er fríið mitt á enda í dag. Ég fer í vinnuna á mánudaginn.
Lífið í sveitinni er gott. Þórður er að verða búinn að tengja rafmagnið. Hann er búinn að tengja ljósin, þannig að nú er hægt að kveikja og slökkva inni í fjárhúsum. Hann á bara eftir að tengja innstungur, eða sko þannig að hægt sé að stinga í samband.
Það er svo gaman að fara í fjárhúsin, og þessvegna ekki gera neitt, nema horfa á kindurnar. Ég held að maður endurnærist við það að skreppa þangað.
Ég fer aftur til læknis 11. nóv. því ég er ekki orðin góð í hnénu. Ég er búin að fara á mánaðarfresti, já eða oftar, til læknis, síðan í maí. ALVEG búin að fá nóg.

Afmælisgjöfin hans pabba, hún Golta.
Molinn kveður.