Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 118
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 808
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 3589915
Samtals gestir: 96708
Tölur uppfærðar: 16.7.2026 02:47:53

Færslur: 2026 Júní

30.06.2026 16:23

Heyskapur

Þórður var farinn að snúa kl. 06:30 í morgun. Það var mikill

blástur og þurrkur

Hann snéri öllu einu sinni

Hann garðaði svo upp, um hádegi. Það er mikill blástur og

góður þurrkur

 

 

Guðmundur á Þúfnavöllum kom og rúllaði fyrir okkur

Það voru 16 rúllur á stykki 9 og 51 rúllur á fjárhústúninu.

Þessi stykki eru ekki búin að vera friðuð

Það eru þá komnar 81 rúllur í sumar

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

29.06.2026 18:24

Fjárflutningar

Ekki er nú heyskaparveður. Það rigndi í morgun og þá er 

bara næsta verkefni, keyra féð á fjall

 

 

 

 

 

 

 

 

Við fórum fjórar ferðir með fé á kerrunni. Við erum svona

ca. hálfnuð með það. Ef veðrið verður þurrt á morgun, þá

geymum við fjárflutninga þar til eftir heyskap

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

28.06.2026 18:09

Heimferð

Þetta fékk ég sent í gærkvöld. Já við áttum bókaða ferð

kl. 08:15 í morgun. Í þessum pósti er búið að fella niður

ferðina okkar. Við fengum smá sjokk, því eftir þessu að 

dæma, þá hefðum við ekki komist fyrr en á þriðjudag. Við

fórum niður að höfn og Herjólfur var að fara kl. 22. Við létum

setja okkur á biðlista fyrir þeirri ferð. Það var allt fullt og við

komumst ekki. Við ákváðum að bíða eftir næstu ferð, sem

var kl. 23:55 og var síðasta ferðin. Við létum setja okkur á

biðlista. Það vildi svo til að það var pláss fyrir okkur í þessari

ferð. Við vorum komin í land um kl. 01. Við gistum bara á

planinu við Landeyjarhöfn. Það var heldurbetur lukka að

komast í land

Í Herjólfi. Það urðu tveir sjóveikir, en ekki alvarlega

Þarna gistum við í nótt og það fór vel um okkur. Við vöknuðum

kl. 07 í morgun og vorum farin af stað kl. 08

 

 

Í Landeyjarhöfn

HEIMA ER BEST. Það var svo gott að koma heim, úff smiley

Það var ákveðið að slá tvö stykki, nr. 9 og nr. 3. Simmi og

Þórður sáu um það. Komið mikið gras á þessi tún. Þórður

snéri svo á báðum stykkjunum

Góðar slægjur. Þá er heyskapur og fjárflutningar næst á

dagskrá hjá okkur

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

27.06.2026 16:51

Orkumótið í Eyjum - 3

Fyrsti leikur dagsins var kl. 08. Þeir kepptu á móti Fram og

gerðu jafntefli 1-1

 

 

 

 

Næsti leikur var kl. 10. Þeir kepptu á móti HK og töpuðu 

2-0

 

 

 

 

 

 

 

Þriðji leikurinn var kl. 12. Þeir kepptu á móti Val og töpuðu

þeim leik 1-4

 

 

 

 

 

Svo kl. 15:30 var úrslitaleikur milli þeirra og Breiðabliks. Þeir

unnu þann leik 3-1

 

 

 

Það var einhver að tala um að þeir væru í sjöunda sæti af

hundrað og eitthvað liðum. Ég er svo vitlaus í fótbolta að

ég hef ekki hugmynd um hvort það sé rétt eða ekki. Ef að 

þetta er rétt þá er þetta frábær árangur

Liðið hans Víkings

Við fórum og fengum okkur að borða á pizza 67. Fljót og 

góð þjónusta og maturinn góður

Allir ánægðir með sitt

 

Við fórum svo á rúntinn um bæinn

Stafkirkjan

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Við fórum meðal annars á Stórhöfða. Gaman að koma til

Eyja

 

 

 

Veðrið í Eyjum

 

 

Molinn kveður

 

 

26.06.2026 10:13

Orkumótið í Eyjum - 2

Fyrsti leikur dagsins var kl. 08:20. Þeir kepptu á móti Fjölni

og unnu þá 7-2, en það var bara skráð 5-2. Víkingur var í

marki þann leik

 

 

 

Næsti leikur var kl. 09:40. Þeir kepptu á móti Haukum. Þeir

gerðu jafntefli við þá, 2-2

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo var leikur númer 3 klukkan 11 og það var síðasti leikur

dagsins hjá þeim. Þeir kepptu á móti Keflavík og unnu 5-1,

en það var skráð 4-1. Það var gott veður á öllum leikjunum

í dag. Betra að hafa þurrt smiley

 

 

 

 

 

Svo er hér hópmynd af liðinu hans Víkings

 

Við fengum okkur göngutúr inn í Herjólfsdal. Það er gaman

að vera búin að koma þar og sjá. Hér eru nokkrar myndir 

sem ég tók þar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi fiskibirgi eru þarna hægra megin. Þau sjást nú illa, en

kannski hægt að sjá ef hægt er að stækka myndina

 

Þessir fuglar eru á tjörn inní Herjólfsdal

 

 

 

Og svakalega margar dúfur þar líka

Þessi maður var að gefa þeim brauð

Fallegir og gæfir fuglar

 

 

 

 

Veðrið í Eyjum

 

 

Molinn kveður

 

 

25.06.2026 11:18

Orkumótið í Eyjum - 1

Fyrsti leikur dagsins var kl. 08:20. Þeir kepptu á móti FH.

Þeir töpuðu þeim leik 2-0

Það rigndi allan tímann sad Víkingur var í marki þann leik

 

 

 

 

 

Næsti leikur var kl. 09:40. Þeir kepptu á móti Þrótti og unnu

3-1. Það rigndi ekki mikið á þeim leik

 

Svo var leikur númer 3 klukkan 11. Það var síðasti leikur

dagsins hjá þeim. Þeir kepptu á móti KR. Það var jafntefli í

þeim leik

 

 

 

 

 

 

Þeir fóru svo í skemmtisiglingu í Klettshelli. Voða gaman

hjá þeim

Þessi dúfa kom í heimsókn til okkar

 

 

 

 

Veðrið í Eyjum

 

 

Molinn kveður

 

 

24.06.2026 13:49

Eyjar

Annar í hangikjöti. Sjúklega gott

Það stytti upp upp úr hádegi í dag. Við fórum í göngutúr um 

bæinn. Við hittum þennan risa bolta á leið okkar í bæinn

 

 

 

Ási í Bæ

 

 

Við fórum á SEA LIFE Trust Beluga Whale Sanctuary safnið. 

Hér koma nokkrar myndir þaðan

 

 

 

Mjaldur

Gaman að sjá þennan

Mjaldur

Við fórum svo að spranga

Það var tekið vel á því

 

Ég held að þetta sé Rita

Rita með unga

 

 

 

 

Veðrið í Eyjum

 

 

Molinn kveður

 

 

23.06.2026 17:04

Vestmannaeyjar og arfgerðarsýni

Jæja hér var gott að vakna. Hafragrautur í morgunmat 

Og auðvitað hitað kaffi. Það er ómissandi

Þessir glaðir með útileguna

Svo kom hádegismatur og þá sauð ég kartöflur

Og ég gerði jafning, því við borðuðum hangikjöt

Svakalega góður matur

Allir urðu saddir og ánægðir

Þarna sjáum við Herjólfsdal

 

Við fórum svo í gönguferð og fórum í Eldheima

 

 

 

 

Það er hægt að snúa þessari skífu, til að sjá hvernig hraunið

rann, frá byrjun og til enda. Mjög sniðugt

Þarna er Þórður fyrir framan hjálma sem notaðir voru þegar

hann fór og mokaði af þökum í gosinu. Það er þessi græni

sem er fyrir framan hann

Þetta hús var grafið upp. Það er inn í byggingunni á safninu.

Mjög gaman að sjá þetta

 

Við fengum 23 sýni úr greiningu í morgun. Af þeim voru 16

með góða arfgerð

 

8 sem voru með R171, 3 gimbrar og 5 hrútar

5 með T137, 2 gimbrar og 3 hrútar

1 arfhreint T137 og það var hrútur

og 1 hrútur og 1 gimbur sem eru bæði með R171 og T137

 

Við erum þá komin með 97 lömb sem eru með T137 eða R171

eða bæði, já eða arfhrein T137 og arfhrein R171. Þau skiptast

svona:

42 gimbrar: 9 með T137, 20 með R171, 6 arfhreinar T137.

1 arfhrein R171 og 6 sem eru bæði með T137 og R171

 

55 hrútar: 12 með T137, 32 með R171, 7 arfhreinir T137,

1 arfhreinn R171 og 3 bæði með T137 og R171

 

Þetta á eftir að breytast, því við eigum eftir að fá 10 sýni úr

greiningu

 

 

 

 

Veðrið í Eyjum

 

 

Molinn kveður

 

 

22.06.2026 18:45

Vestmannaeyjar

Við lögðum af stað til Vestmannaeyjar í morgun um kl. 11.

Við byrjuðum á að stoppa í skagafirði og fá okkur að borða

Það eru svo flottir staðir sem hægt er að keyra niður að á og 

leggja í smá stund

Pylsur í matinn hjá þessum

Og svið hjá Þórði

Við keyrðum svo alla leið að Landeyjarhöfn, með einu kaffi

stoppi á leiðinni. Þarna er Seljalandsfoss

Við beygjum niður að Landeyjarhöfn rétt hjá þessum fossi

Og þarna sjáum við Vestmannaeyjar. Þegar við komum 

þangað, var ca. korter í að Herjólfur færi til Eyja. Við ákváðum

að spyrja hvort það væri hægt að fara í þessa ferð og við 

fengum biðmiða, en svo gátum við farið. Við áttum ekki að

fara fyrr en á morgun kl. 13. Ef við hefðum ekki fengið far

núna, þá ætluðum við bara að gista á planinu þar í nótt

Þeir voru mjög spenntir að fara eins og sést

 

Landeyjarhöfn

Við öll mjög spennt, þar sem við höfum aldrei komið til Eyja,

eða jú ég kom í millilendingu með sjúkraflugi þegar ég var

að fara með Huginn litla í sjúkraflugi frá Reykjavík til

Akureyrar og Þórður var að moka vikri af húsþökum í gosinu

1973. Það verður gaman að koma almennilega til Eyja

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Friðrik og Leó tóku á móti okkur. Þeir komu í dag

Friðrik tók þessa mynd þegar við komum

Við verðum á tjaldstæði hér í 6 daga. Já og verðum meirisegja

í rafmagni haha

 

 

 

 

Veðrið í Eyjum

 

 

Molinn kveður

 
 

21.06.2026 19:20

Vonandi koma arfgerðarsýni á morgun

19-445 Lúra með hrút og gimbur undan 25-740 Þræði. 

Hrúturinn (þessi flekkótti) er með N138, en við eigum eftir

að fá greiningu úr gimbrinni 

18-408 Elín með gimbrar undan 25-740 Þræði. Önnur er 

með R171, en við eigum eftir að fá greiningu úr hinni

Hrútur og gimbur undan 23-053 Lúpínu og 24-731 Galsa.

Gimbrin er bæði með R171 og T137, en hrúturinn er því

miður hlutlaus

Gimbur undan 24-054 Egedíu og 25-744 Emax. Hún er með

N138 og H154

Gimbur á móti undan Egedíu og Emax. Við eigum eftir að fá

greiningu úr henni

Egedía

Maríuerla

Skógarþröstur

Skógarþröstur

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

20.06.2026 15:09

Smá göngutúr í rigningunni

Hrútur undan 22-014 Gátu og 25-745 Aragon. Því miður er

hann hlutlaus

Hrútur á móti undan Gátu og Aragon. Hann er með R171

Hrútur undan 24-068 Sissu og 25-745 Aragon. Við eigum

eftir að fá greiningu úr honum

Gimbrin á móti undan Sissu og Aragon. Hún er bæði með

R171 og T137

Sissa með lömbin

Hrútur og gimbur undan 24-055 Porru og 24-733 Púka. Þau

eru bæði með T137 og N138. Svo er gimbur á móti þeim

sem er arfhrein T137 og var var vanin undir 25-103 Glóð 

Gimbur undan 24-060 Mæju og 24-733 Púka. Við eigum 

eftir að fá greiningu úr henni

Gimbur á mót undan Mæju og Púka. Hún er arfhrein T137

Og gimbur á móti undan Mæju og Púka. Hún er með

T137 og N138. Hún var vanin undir 20-515 Rúbý. Þetta er

hún Lilla litla

Gimbur undan 25-102 Kládíu og 25-743 Mími. Hún er með

T137

Hrútur undan 20-510 Tindru og 24-735 Fenox. Hann er með

V136 sem er ekki gott. Hann var vaninn undir 25-098 Tíu.

Tía er undan Tindru, þannig að þetta er bróðir Tíu

Gimbur á móti undan Tindru og Fenox. Hún er líka með 

V136. Ekki gott

Og hrútur á móti þeim undan Tindru og Fenox. Hann er með

R171

Hrútur undan 24-070 Másu og 24-731 Galsa. Hann er með

R171. Og hrútur undan 25-094 Fless og 25-741 Mjalla. Hann

er með R171. Hann var vaninn undir Másu

24-086 Glóý með hrút og gimbur undan 25-745 Aragon.

Þau eru því miður bæði hlutlaus. Falleg lömb

Hrútar undan 24-076 Rist og 25-738 Max. Þessi sem er nær

á myndinni er arfhreinn T137, en við eigum eftir að fá sýni

úr hinum

Forystuflokkurinn okkar

19-459 Feldís með hrút og gimbur undan 25-745 Aragon.

Gimbrin er með R171 en hrúturinn er hlutlaus

22-022 Skúta með tvo hrúta og eina gimbur undan

25-738 Max. Við eigum eftir að fá greiningu úr hrútnum sem

er hægra megin og svo gimbrinni sem er til vinstri. Hrúturinn

í miðjunni er því miður bara með N138

 

Maríuerla með unga hér í garðinum. Ég tók nokkrar myndir

af þeim

 

 

 

 

 

Þetta var aðeins of stórt fyrir ungann

 

 

 

 

 

Hún reyndi eins og hún gat, en endaði með því að fljúga

burt með brauðið

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

19.06.2026 16:35

Barnaspítali Hringsins

Já hann var búinn í aðgerð um miðnætti og fór þá á vöknun.

Aðgerðin gekk vel. Hann var pínu lengi að vakna, enda komin

nótt. Hann var svo fluttur á barnadeildina. Og svo hélt hann

bara áfram að sofa. Ég gisti hjá honum í nótt og Þórður og

Alexander gistu í húsbílnum. Allir stóðu sig vel í þessu. Við

fórum af sjúkrahúsinu um hálf tíu í morgun.

Þess má geta að herbergið sem við vorum í var við hliðina

á herberginu sem elsku litli Huginn okkar var. Það rifjaðist

allt upp þegar ég var hjá honum á Barnaspítala Hringsins

fyrir 11 árum heart

Við fórum svo heim í dag. Það var mjög hvasst og rykti í 

bílinn annað slagið. Það var hvasst nærri alla leið heim. Það 

er ekki gott að keyra húsbíl í roki

Og við erum komin heim. Heima er best heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

18.06.2026 18:19

Borg óttans

Já eins og ég sagði í bloggi í gær, þá þurftum við að fara til

Reykjavíkur. Það kom í ljós fæðingargalli hjá Damian sem 

þurfti að laga. Við mættum á bráðamóttöku Barnaspítala

Hringsins fyrir kl. 9 í morgun. Hann var fastandi síðan í

gærkvöld. Við þurftum að bíða og bíða eftir aðgerðinni sem

þurfti að gera á honum. Okkur var sagt að hann kæmist

í aðgerð kannski kl. 16, en það var nú ekki. Það voru 

allavega tvær aðgerðir sem þurfti að gera eftir kl. 16 sem

voru bráðatilfelli. Damian komst í aðgerð kl. 23 í kvöld, þá

búinn að fasta í 27 klukkutíma bæði með drykk og mat. 

Hann stóð sig alveg svakalega vel

 

 

 

 

 

Molinn kveður 

 

 

17.06.2026 18:59

17. júní

Gleðilega þjóðhátíð kæru síðuvinir

Við þurftum að hendast snögga ferð til Reykjavíkur. Við

stoppuðum við Húnaver og fengum okkur að borða

Við fórum á húsbílnum. Það var hvasst sumstaðar á leiðinni

Áningarstaður

Og steiktar bollur voru það heillin

Og steikt egg

 

Mjög góður matur

Og svo kaffi á eftir, það má nú ekki klikka smiley Nú er spurning

hvort við verðum eina eða tvær nætur í borg óttans

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

16.06.2026 18:43

Spennandi

Við eigum eftir að fá aðgerðarsýnin greind úr þessum

lömbum og fleiri lömbum. Það verður spennandi að sjá

hvað þau fá

Gimbur undan 24-065 Ársól og 24-735 Fenox. Hún gæti

verið með R171 og C151

Hrútur undan 24-076 Rist og 25-738 Max. Hann gæti verið

með T137 eða jafnvel arfhreinn T137

Hrútur undan 24-062 Kilju og 24-735 Fenox. Hann gæti 

verið R171 og H154

Gimbur undan 19-475 Þyrey og 24-735 Fenox. Hún gæti 

verið R171 og N138

Hrútur undan 22-022 Skútu og 25-738 Max. Hann gæti

verið með T137 og N138

Það er eins með þessa gimbur. Hún er undan Skútu og Max.

Gæti verið með T137 og N138

 

Spennandi að fá restina af sýnunum

 

Þórhallur sonur okkar er 34 ára í dag. Til hamingju með

afmælið elskan heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 


clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

14 ár

10 mánuði

2 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

4 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

4 ár

6 mánuði

2 daga

Tenglar

Eldra efni