
Við vöknuðum í morgun á þessum flotta stað. Strákarnir léku sér að halda jafnvægi og ganga á réttarveggjunum
Þessum fannst skemmtilegra að kasta golfkúlunni sinni. Ef vel er að gáð, þá sést hún á myndinni
Og allir í morgunmat
Flottir strákar
Við fórum í sund á Ólafsfirði. Það fannst þeim mjög gaman. Þeir fóru líka í leiktækin við skólann og á ærslabelginn
Þula og Týri
Við stoppuðum við Hringver í Ólafsfirði og fengum okkur að borða
Týri og Þula
Verið að spila veiðimann
Maður reddar sér með að þurrka sundfötin. Ég keypti snúru og klemmur í Ólafsfirði og ég náði að þurrka þetta á meðan við stoppuðum við Hringver
Við fórum svo Lágheiði og inn í Fljót. Við sýndum strákunum stífluna við Skeiðsfossvirkjun. Þeim fannst hún merkileg
Þarna standa þeir á stíflunni
Við stoppuðum við Ketilás og fengum okkur að drekka. Fljótin
Við keyrðum svo til Ólafsfjarðar og leyfðum strákunum að fara í fjöru. Við fengum okkur svo að borða kvöldmat, þarna við fjöruna
Þeir voru ánægðir og tíndu steina og skeljar
Við keyrðum svo heim og ætlum að sofa í húsbílnum á bílaplaninu okkar. Við sáum þegar heim var komið að það er byrjað að flísaleggja. Úúú spennandi
Molinn kveður