Þegar veðrið er þannig að ekki er hægt að heyja, þá eru það
bara fjárhúsin. Tiltekt og fl. Við settum afrúllarann þar sem
hann á að vera í vetur
Við byrjuðum á að lagfæra grindurnar. Snérum við timbrinu
sem þoldi það og skiptum út þeim sem voru ónýtar
Maríuerla er með hreiður í fjárhúsunum. Það eru 4 ungar í því
Svo komu um 60 Staraungar fljúgandi hingað heim. Þeir hafa
áreiðanlega verið að yfirgefa hreiðrin sín
Molinn kveður
Lömb undan 19-463 Linsu og 22-717 Vívalda. Linsa var
þrílembd og hér koma þau
Gimbur. Hún er með arfgerðina T137
Gimbur. Hún er með arfgerðina 138
Hrútur. Hann er með arfgerðina T137
Lömb undan 15-204 Fleytu og 22-717 Vívalda. Fleyta var
Gimbur. Hún er með arfgerðina T137 og 151
Gimbur. Hún er með arfgerðina T137 og 138
Hrútur. Hann er með arfgerðina T137 og 151
Lömb undan 18-403 Læpu og 22-717 Vívalda. Læpa var
þrílembd og hér koma lömbin hennar
Hrútur. Hann er með arfgerðina 138
Við eigum enn eftir að fá að vita með 9 sýni sem við sendum
í lok sauðburðar og svo 7 sýni sem mistókst að greina. Það
þarf líklegast að taka aftur úr þeim lömbum í haust
Þórður hélt áfram að slá. Hann sló stykki 8, 4 og 1. Þá er búið
að slá allt hér heima. Hvenær svo, sem hægt verður að rúlla,
verður bara að koma í ljós
Við drifum okkur bara í sund á Þeló á meðan Þórður var að
slá
Þórður og bræður hans að hittust í dag
Þórður sló fjárhústúnið (stykki 3) í dag
Það á víst að vera rigning næstu daga. Vonandi kemur glufa
svo hægt verði að hirða af því
Það var bara ekki hægt að láta þetta spretta meira. Þetta var
beitt, svo þetta er bara hreinsun
Raufarhöfn
Við fórum og skoðuðum heimskautsgerðið
Þetta er enn í vinnslu og á eftir að verða flott
Það var gaman að sjá þetta
Við fórum svo á hvalasafnið á Húsavík
Þessi vakti áhugann hjá þessum
Við keyrðum svo heim. Ferðalagið búið í bili
Enginn tölvutími fyrr en kl. 17. Þá þarf að finna sér eitthvað
að gera, því það er ekki hægt að horfa á sjónvarpið. Það
byrjaði að rigna í morgun, en það var ekki mikið
Kelduhverfi
Við fórum í Ásbyrgi. Þangað höfum við Þórður ekki komið í
MJÖG mörg ár. Strákarnir höfðu ekki komið þangað og
fannst þeim gaman að sjá
Tjörnin í Ásbyrgi
Upp við klettinn í botni Ásbyrgis
Þessi fugl var á tjörninni. Ég veit ekki hvaða fugl þetta er
Og svo þessi. Ég hef aldrei séð þennan fugl. Hann er með
gul/græn augu. Ef þið þekkið þennan fugl, megið þið
láta mig vita
Þetta er unginn þeirra
Skrítinn fugl
Óðinshani
Já og svo voru fiskar í tjörninni
Þórður að rifja upp gamlar minningar. Þarna hefur hann
dansað fyrir all mörgum árum
Og þarna eigum við margar góðar minningar. Þarna mátti
tjalda, en það er hætt að mega nota þetta sem tjaldstæði.
Við fórum mjög oft og tjölduðum þarna
Planið í Ásbyrgi
Sveppatré
Auðvitað eldar maður í bílnum
Allir ánægðir nema litli stubbur
Við fórum í Hljóðakletta. Þangað höfum við Þórður ekki komið
í MJÖG mörg ár. Strákarnir voru að koma þangað í fyrsta
skiptið
Já og svo fórum við að Dettifossi. Það er eins með hann.
Strákarnir höfðu ekki séð hann og langt síðan við fórum
þangað
Selfoss
Þetta er þvottabretti. Við fórum Melrakkasléttuna og viti menn,
vegurinn var svona, eins og þvottabretti
Við erum á milli Kópaskers og Raufarhafnar. Á Melrakkasléttu
nær Raufarhöfn. Við þurftum að hvíla okkur á þessum vegi
hahahaha. Aumingja fólkið sem býr hérna og þarf að keyra
á þessum vegi. Hér verðum við í nótt
Við vorum komin upp á tún um kl. 8 í morgun til að ganga
frá endum og merkja rúllurnar
Þórður keyrði rúllunum heim
Fyrri ferðin
Hann kláraði að keyra þeim heim
Maríuerlan alltaf flott
Þetta er sú sem á hreiður í garðinum okkar
Við ákváðum að fara í smá ferðalag. Við vissum ekkert hvert
við ættum að fara. Við keyrðum austur og enduðum á að
leggja á þessu plani sem er á Tjörnesinu. Við ætlum að vera
hér í nótt. Hvað við gerum á morgun veit enginn
Ánægðir guttar
Þórður snéri þessu tvisvar í gær og garðaði svo upp. Í nótt
rigndi og allt blautt í morgun. Þórður snéri þegar allt var
orðið þurrt og svo garðaði hann. Við fengum svo verktaka,
Ingás, seinnipartinn til að rúlla þetta. Það voru 29 rúllur á
þessu
Búinn að rúlla
29 rúllur á stykki 5
Maríuerlan með fullan gogg af flugum handa ungunum
sínum
Þórður snéri tvisvar á stykki 5 og garðaði svo upp
Á meðan Þórður var að snúa, fórum við í fjöruna á Hjalteyri
Þar voru nokkrir fuglar. Æðarkollur með unga
Þær voru með marga unga
Himbrimi
Spói
Hettumáfur
Þessi brunaði framhjá
Maríuerluungi
Maríuerlan að mata ungann sinn
Og kónguló að gæða sér á flugu
Þetta er gömul mynd, en ég nota hana bara. Þórður sló stykki
númer 5, sem er upp í fjallshólfi. Hann snéri líka einu sinni.
Vonandi náum við að rúlla þetta á laugardaginn
Við fórum í sund á Hrafnagili, meðan Þórður var að slá og
snúa
Nú erum við búin að nota fjárflutningavagninn og þá þarf
að taka kassann af. Það var gert í dag
Svo þurfti að þrífa vagninn
Og þá er hann klár
Við sáum uglu í morgun. Myndgæðin eru ekki góð, þar sem
það var þoka
Fuglahúsið sem tengdamamma smíðaði, var sett upp í vor.
Það er í notkun
Þrastarungar
Svo er þetta fuglahús líka í notkun. Hús sem Friðrik gaf okkur
Ég er ekki alveg viss hvaða ungar eru þar
Jú ég er alveg viss hvaða ungar þetta eru. Ég náði mynd af
foreldrinu og það er Maríuerla
Loksins kom rigning. Það var að byrja að brenna á túnunum
og vonandi kemur rigningin í veg fyrir að grasið brenni
Ég náði takmarkinu í dag, sem er að taka myndir af öllum
lömbunum 269 lömb og þá 269 myndir
Þessi bíður spennt eftir frelsinu.
Við fórum eina ferð í dag með vagninn. Við erum þá búin
að keyra allt á fjall nema þrílemburnar. Þær fá að vera heima
aðeins lengur. Við klipptum klaufirnar á þeim áður en þær
fóru
Í slökun áður en lagt er af stað
Við fórum eina ferð, bæði með kerruna og vagninn,
í dag. Við ætluðum að klára, en ákváðum að skipta restinni
niður á tvo daga. Við klárum þetta á morgun
Þær eru frelsinu fegnar
Gleðilegan þjóðhátíðardag kæru síðuvinir
Við fórum á bílasýningu hjá Bílaklúbbi Akureyrar, í dag
Tveggjasæta Farmall
Lítill bíll
Þessi er svakalegur
Stór dagur í dag. Við fórum tvær ferðir með vagninn. Þá er
þetta hálfnað. Við keyrum þrílemburnar ekki á fjall, fyrr en
um mánaðarmótin
Þessar bíða eftir frelsinu
Við vorum með öfluga drengi með okkur í þessu
Við tökum frí á morgun, en ætlum að klára á sunnudaginn
Nafn:
Farsími:
Tölvupóstfang:
Afmælisdagur:
Heimilisfang:
Staðsetning:
Um:
Einar Breki, kom í heiminn
atburður liðinn í
13 ár
6 mánuði
18 daga
Haukur Nói, kom í heiminn
10 ár
8 mánuði
21 daga
Birgitta Ósk, kom í heiminn
3 ár
2 mánuði
19 daga
Eldra efni
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is