Búningadagur í skólanum í dag. Fjórir hressir til í daginn
Molinn kveður
Snjólétt þessa dagana. Það er búið að vera logn og þá algjört
logn í marga daga, já eða vikur
Auðnutittlingar
Við erum búin að gefa þeim að éta síðan síðasta vetur. Já í
allt sumar og haust. Það er svo gaman af þeim
Pabbi á daginn í dag. Til hamingju með afmælið elsku
pabbi
Tekið í spil áður en farið er í fjárhúsin
Gemlingarnir
Eldri ærnar
Veturgömlu og tveggja vetra ærnar
Deildarmyrkvi í kvöld
Sko okkar mann. Annað sæti
Nú er rúlla númer tvö, af nýræktinni, komin inn. Við gáfum
af henni í dag
Og þær eru mjög æstar í þetta "vot" hey
Éta með bestu lyst
Unnar kom og klippti restina af kindunum
Óla komin úr
Marey líka
Þær koma bara þokkalega undan ullinni
Þessi matur bregst aldrei. Æðislega góður
Alveg svakalega góður
Tunglið í kvöld
23-727 Maxímus forystuhrútur
23-114 Sóti litli
Við settum fullorðinsmerki í hrútana, í morgun. Þá eru öll
lömbin okkar komin með fullorðinsmerki
23-722 Brútus
23-723 Ratipong
Mynd tekin í kvöld
Jæja, hér er verkefni Inga Rúnars. Hann ákvað að flikka upp á
sturtuvagninn. Ég læt myndirnar tala sínu máli
Svo glæsilegt hjá honum. Flottar felgurnar og allur vagninn
Hann lakkaði líka grindina undir vagninum
Við settum fullorðinsmerki í gimbrarnar, í morgun
Við ákváðum að skrifa ofaní númerið, því það dofnar svo með
tímanum
Ég held að þetta verði allt annað
Gemlingarnir okkar
Gemlingarnir taka fóðrinu vel. Það er komin smá ull á þær
aftur. Þeir eru svo duglegir að borða
23-053 Lúpína
23-045 Anímóa
23-047 Gloría
Restin af ánum tökum við inn á föstudaginn og þá verða þær
klipptar
Húsbíllinn okkar. Felgurnar eru riðgaðar og blái liturinn er
upplitaður þarna framaná
Ingi Rúnar bróðir Þórðar er búinn að fríkka upp á hann. Hann
er búinn að spreyja felgurnar og bera á bláa litinn framan á
bílnum. Nú er allt annað að sjá hann. Við skulum segja eitt,
Ingi er snillingur
Þórður keypti ný dekk undir strumpastrætóinn okkar. Negld
vetrardekk. Við erum þá komin með einn bíl á nagladekk
Ofhlaðið fjórhjól og ekið mjög rólega
Í rokinu um daginn, þá brotnuðu nokkrir staurar í girðingum
hjá okkur. Við fórum í dag og settum niður nokkra staura
Ungur nemur gamall temur. Hér er Þórður að kenna
strákunum hvernig á að gera þetta
Þeir lærðu þetta fljótt og stóðu sig mjög vel
Duglegir strákar
Svakalega hraustir og flottir
Vel gert
Þeir fengu svo far í skóflunni
Þeim fannst þetta ekki leiðinlegt
Ærnar voru hér heima við fjárhúsin þegar við fórum að gefa
seinni gjöfina. Við opnuðum fjárhúsin og þær komu bara inn
og vildu fá hey. Þær verða þá bara inni í nótt
Í morgun
Við prufuðum að gefa eina rúllu af nýræktinni. Þær eru mjög
þungar og blautar. Við settum hana ekki í afrúllarann. Við
mokum votheyinu með kvísl upp í vagninn
Við gáfum þetta vothey á garðann
Og þær voru frekar ánægðar. Tættu það í sig
Gott veður, dag eftir dag
Fullorðnu ærnar eru enn úti. Við tökum þær inn næstu helgi
Það má segja það, að það hafi verið bleikur/appelsínugulur
himinn í morgun á bleika deginum
Við vorum að fá okkur forystuhrút. Hann fékk nafnið
Maxímus
Maxímus er gæfur. Sígur niður að aftan þegar maður klappar
honum og dillar dindlinum
Það þarf ekki bleikan dag til að systir mín, Hafey, gangi
í bleikum fötum. Ó nei. Hún er í bleikum fötum hvern
einasta dag. Það er annað en ég. Ég er yfirleitt í svörtum
fötum. Hér er hún í góðum félagsskap þeirra Gunna og
Felixar. Þeir heimsóttu hana í Giljaskóla í dag
Flottur himinn í morgun
Gamla kerran okkar er orðin eins og ný. Ingi Rúnar, bróðir
Þórðar, er búinn að gera hana upp. Felgurnar orðnar flottar
Nýjar rafmagnsleiðslur og afturljós
Nýr botn
Öryggiskeðja og fl.
Ærnar á beit
Kindurnar koma hlaupandi til okkar, til að fá brauð
Það verður gaman að fá þær á hús
Í morgunsárið
Ærnar á beit á stykkinu fyrir neðan íbúðarhúsin
Sá stutti er úti að leika sér, lengi eftir skóla. Hann dundar sér
mikið
ARR hrútur sem við vorum að kaupa. Ég var of sein að mynda
hann í ullinni. Unnar kom og klippti nokkrar kindur, þar á
meðal þennan hrút
Búbba fór í klippingu
Og Sif fékk líka klippingu
Þær fóru út í morgun og fara ekki inn í kvöld
Þessar fara ekkert út og hafa það bara gott inni
Æi litla greyið dó í dag. Mamman gerði sér lítið fyrir og lagðist
ofan á það. Skrítið þegar þær gera svoleiðis
Nafn:
Farsími:
Tölvupóstfang:
Afmælisdagur:
Heimilisfang:
Staðsetning:
Um:
Einar Breki, kom í heiminn
atburður liðinn í
13 ár
6 mánuði
18 daga
Haukur Nói, kom í heiminn
10 ár
8 mánuði
21 daga
Birgitta Ósk, kom í heiminn
3 ár
2 mánuði
19 daga
Eldra efni
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is