Við sprautuðum allt féð, fyrri sprautuna, 
gegn lambablóðsótt, í morgun
	
		
			|  | 
		
			| Mánuður í sauðburð. Seinni bólusetningin verður eftir tvær vikur  | 
	
	
		
			|  | 
		
			| Þórður ákvað að sprauta sjálfur og stóð sig alveg svakalega vel. Ég var aðeins smeik um að hann mundi fara framúr sér, en hann réði vel við þetta 
				
					
						|  |  
						| Við vorum með þessa vinnumenn með okkur  
							
								
									|  |  
									| Þórður að sprauta og Damian að hjálpa 
										
											
												|  |  
												| Við vorum um tvo tíma að sprauta allt og gefa. Það kalla ég vel gert  
													
														
															|  |  
															| Við fórum svo í vatnsveitugerð eftir mat. Það er svo mikið vatn fyrir ofan íbúðarhúsið. Allt á floti og verður allt á floti við næstu hláku, því það bættist mikill snjór við í gær 
																
																	
																		|  |  
																		|   
																			
																				
																					|  |  
																					| Simmi blés af bílastæðinu og götunni. Mikið krap og leiðinlegt að láta það frjósa þannig 
																						
																							
																								|  |  
																								|   
																									
																										
																											|  |  
																											| Tveir vinir að leika sér         Molinn kveður |  |  |  |  |  |  |      |  |