|
Við klipptum klaufir á 22 kindum í morgun. Það er ekki séns
að klippa klaufirnar á þeim áður en þær fara út á vorin, því
þær eru svo grjótharðar. Þegar þær eru búnar að vera úti,
þá verða þær mýkri og ekkert mál að klippa þær. Það er bara
vika síðan Þórður var í aðgerð á hendinni og hann klippti
klaufir á móti mér. Hann er jaxl þessi elska Við vorum
líka með einn öflugan (Damian) sem hjálpaði mér að setja
kindurnar í stólinn. Við ætlum að taka nokkrar kindur á
morgun. Það verður gott að vera búin að þessu þegar við
förum að keyra þær í fríið sitt
Molinn kveður
|