|
Bæði Glöð og Púki eru með arfgerðina T137, þannig að þeir
gætu báðir verið arfhreinir T137. Við tökum sýni úr þeim á
morgun og sendum þau frá okkur á mánudaginn.
Það er alveg furðulegt með þessa greiningu hjá Matís. Við
sendum frá okkur öll sýnin um miðjan maí og þau eru ekki
öll komin ennþá. Þeir eru að senda okkur nokkur í einu. Við
fengum tvö greind síðasta mánudag og annað kom vel út.
Það var gimbur sem var arfhrein T137. Alveg furðulegt hvað
þetta tekur langan tíma, fer að verða komnir tveir mánuðir
síðan öll okkar sýni voru send
 |
|
Þórður snéri tvisvar á enginu í dag. Svo garðaði hann allt
upp og Guðmundur á Þúfnavöllum kom og rúllaði
 |
|
Það voru 72 rúllur af þessu stykki 6
 |
|
Við drifum okkur niðureftir til að ganga frá endum og merkja
rúllurnar
 |
|
Númer 6
 |
|
Við kláruðum að ganga frá endum og merkja 72 rúllur. Svo
flottir vinnumenn sem við erum með
 |
|
Það var frekar stutt í rigninguna. Við sluppum samt alveg
|
 |
|
Auðvitað fór Þórður í að keyra heim rúllum. Hann fór eina
ferð í dag/kvöld
 |
|
18 rúllur í ferðinni. Þrjár ferðir eftir sem ég veit að hann
tekur á morgun og klárar ef ég þekki hann rétt 
 |
|
Jæja nú eru komnir 3 ungar hjá Skógarþrestinum sem
verpti inn í hlöðu. Tvö egg eiga eftir að klekjast út
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
|