
4. des. létum við sæða 4 ær með Lampa. Þær héldu allar.
7 lömb á lífi, 4 hrútar og 3 gimbrar.
1 þrílembd (eitt dautt fyrir ca. 3-4 vikum), 2 tvílembdar og 1 einlembd
4. des. létum við sæða 4 ær með Dreka. Þrjár héldu af þeim. Við sáum eina ganga upp.
6 lömb á lífi, 1 hrútur og 5 gimbrar.
Allar tvílembdar
4. des. létum við sæða 3 forystuær með Unga. Þær eru allar óbornar. Ég hef trú á því að þær beri innan þriggja daga. Þær ganga lengur með. Það sést á þeim að þær hafa ekki gengið upp. Ég læt upplýsingar um þær hér þegar þær eru bornar. Við eigum von á 5 lömbum úr þeim
5. des. létum við sæða 4 ær með Fáfni. Þrjár af þeim héldu. Við sáum ekki þessa einu ganga upp, en hún hefur gert það.
5 lömb á lífi, 3 hrútar og 2 gimbrar
2 tvílembdar og 1 einlembd
5. des. létum við sæða 3 ær með Molla. Þær héldu allar.
4 lömb á lífi, 3 hrútar og 1 gimbur.
1 tvílembd og 2 einlembdar
5. des. létum við sæða 3 ær með Móra. Þær héldu allar.
5 lömb á lífi, 3 hrútar og 2 gimbrar.
2 tvílembdar og 1 einlembd
Samtals úr sæðingunum 27 lömb, 14 hrútar og 13 gimbrar.
Svo koma 5 forystulömb
Í gær (29. apríl) fæddust 2 lömb, 2 hrútar
Á lífi, 133 lömb, 69 hrútar og 64 gimbrar
Molinn kveður