Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 154
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 808
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 3589951
Samtals gestir: 96708
Tölur uppfærðar: 16.7.2026 04:01:17

Færslur: 2026 Júní

15.06.2026 17:57

Arfgerðarsýni

Við fengum 14 arfgerðarsýni í dag og af þeim voru 11 góðar

arfgerðir. 

5 sem voru með R171, 3 gimbrar og 2 hrútar

2 með T137, og það eru 2 hrútar

2 arfhrein T137, ein gimbur og einn hrútur

1 gimbur arfhrein R171

og 1 hrútur sem er bæði með R171 og T137

 

 

Við erum þá komin með 81 lömb sem eru með T137 eða R171

eða bæði, já eða arfhrein T137 og arfhrein R171. Þau skiptast

svona:

36 gimbrar: 7 með T137, 17 með R171, 6 arfhreinar T137.

1 arfhrein R171 og 5 sem eru bæði með T137 og R171

 

45 hrútar: 9 með T137, 27 með R171, 6 arfhreinir T137,

1 arfhreinn R171 og 2 bæði með T137 og R171

 

Þetta á eftir að breytast, því við eigum eftir að fá 33 sýni úr

greiningu

Hrútar undan 22-020 Skel og 24-731 Galsa. Þeir eru báðir

með R171

Gimbur undan 20-498 Hriflu og 25-745 Aragon. Hún er með

R171

Hrútar undan 19-469 Æðey og 25-745 Aragon. Annar er 

kominn með greiningu R171, en við bíðum eftir greiningu

úr hinum

24-060 Mæja með gimbrar undan 24-733 Púka. Önnur er 

komin með greiningu og hún er arfhrein T137. Við bíðum

eftir greiningu á hinni gimbrinni 

24-054 Egedía með gimbrar undan 25-744 Emax. Önnur er

með H154 og N138. Við eigum eftir að fá greiningu úr hinni

Gimbrar undan 20-521 Offu og 24-731 Galsa. Þessar svörtu

eru báðar með R171. Flekkótta er hlutlaus

23-033 Fluga með hrút (flekkótti) og gimbur undan

24-733 Púka. Hrúturinn er arfhreinn T137 og gimbrin er

með T137

21-001 París með hrúta undan 24-735 Fenox. Við bíðum

eftir greiningu úr þeim 

Hrútur og gimbur undan 24-086 Glóý og 25-745 Aragon. Því

miður eru þau bæði hlutlaus. Algjör synd að fá ekki góða

arfgerð í þau. Foreldrarnir eru bæði með R171

22-013 Vanadís með hrúta undan 24-733 Púka. Þeir eru

báðir arfhreinir T137. Þeir, sérstaklega annar þeirra verður

öngulhyrndur, því miður

Við fórum á skólalóðina hjá Oddeyrarskóla til að borða 

nesti, í bæjarferðinni í dag

Frændi minn í fréttunum í kvöld. Hann náði ekki í

112 númerið til að fá sjúkrabíl fyrir bróður sinn

 

Ég náði nokkrum fuglamyndum í dag

Maríuerla

Maríuerla

Skógarþröstur. Hann var svo grimmur við mig. Þau hjúin

hafa verið með hreiður þarna einhversstaðar

Skógarþröstur

Skógarþröstur

Skógarþröstur

Skógarþröstur

Skógarþröstur

Skógarþröstur

Jaðrakan

Jaðrakan

Tjaldur

Stelkur

Stelkur

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

14.06.2026 16:34

Álftarfjölskylda

Við sáum þessa Álft með 5 unga, í morgun

Og þarna er mótparturinn

Fallegir ungar

Álftarungi

Parið með ungana sína

Við sáum líka annað par með 4 unga

Karri sem er ekki kominn í sumarklæðin sín

 

Franskt herskip í höfn á Akureyri. Það heitir Le Monge og er 

með 115 hermenn innanborðs

Ég vann í foreldralottóinu. Þarna erum við pabbi og mamma

Ég elska þau endalaust heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

13.06.2026 16:00

Heyskapur

Þórður snéri á stykkinu í morgun

 

Guðmundur á Þúfnavöllum kom og rúllaði. Það voru 

14 rúllur af þessu stykki nr. 8. Rúllurnar eru stórar 135 í 

Þvermál. Þær fengu nú ekki að vera lengi á túninu, því Þórður

keyrði þeim í stæðu. Þá er heyskap lokið í bili. Næst á

dagskrá er að keyra féð á fjall

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

12.06.2026 16:22

Sláttur hafinn

Þórður sló stykkið fyrir neðan íbúðarhúsin, í morgun.

Stykki 8

 

 

Alveg þokkaleg slægja

Og hann snéri einu sinni 

Við vorum að kaupa nýtt fjórhjól

Frekar montin á hjólinu

Geggjað hjól

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

11.06.2026 16:17

Stálhnéð eins árs

Nú er liðið eitt ár frá því að ég fékk stálhné. Vá hvað ég sé

ekki eftir því að hafa farið í aðgerð. Nú er ENGINN verkur

og þvílíkur munur að vera verkjalaus smiley

Ég fór með sumarblóm á leiðið hjá foreldrum Þórðar

Og líka hjá litla gullinu okkar

Lömbin eru að stækka vel. Hrútar undan 22-014 Gátu og

24-745 Aragon. Því miður er grái hrúturinn hlutlaus, en sá

hvíti er R171

24-069 Hátíð með hrút og gimbur undan 25-740 Þræði. 

Hrúturinn (vinstra megin) er með R171, en við eigum eftir

að fá greiningu úr gimbrinni

Hrútar undan 24-076 Rist og 25-738 Max. Þessi vinstra megin

er arfhreinn T137 en það er ekki komin greining úr hinum

10-402 Rikka með þrjár gimbrar undan 25-745 Aragon. 

Þessi til vinstri er með R171, við eigum eftir að fá úr þessari

hvítu og þessi til hægri er hlutlaus

 

Þórður fór á sjúkrahúsið í morgun. Það var verið að gefa

honum hjartastuð. Það sást á hjartalínuriti hjartatif. Stuðið

gerði ekkert og hann er eins. Hann finnur ekkert fyrir þessu.

Það á ekkert að gera meira nema ef hann finnur eitthvað

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

10.06.2026 15:31

Fjárflutningakerran klár

Kerran sem við notum í fjárflutning

Við settum skjólborðin á kerruna og nú er hún klár í

fjárflutning, sem verður núna næstu daga

Geggjaður matur í hádeginu í dag

Við fórum á Sólbakka garðyrkjustöð á Ósi og keyptum blóm

til að setja á leiðin

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

09.06.2026 17:57

Arfgerðargreining

Við fengum 10 sýni úr greiningu í dag. Af þessum 10 sýnum,

þá eru 3 með R171, 1 með T137 og 2 bæði með T137 og R171.

Við erum komin með 70 lömb sem eru með T137 eða R171

eða bæði.

31 gimbrar: 7 með T137, 14 með R171, 5 arfhreinar T137 og

5 sem eru bæði með T137 og R171

39 hrútar: 7 með T137, 25 með R171, 5 arfhreinir T137,

1 arfhreinn R171 og 1 bæði með T137 og R171

Þetta á eftir að breytast, því við eigum eftir að fá rúmlega

40 sýni úr greiningu

Gimbur undan 21-009 Valíu og 25-745 Aragon. Hún er bæði

með T137 og R171

Gimbur á móti undan Valíu og Aragon. Hún er líka bæði með

T137 og R171

Á leið í klippingu

Búnir í klippingu

Svo var það garðvinna. Það var nú ekki erfitt, þar sem Simmi

sló garðinn fyrir okkur

Við þurftum bara aðeins að taka illgresið sem var komið

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

08.06.2026 17:54

Klaufsnyrting, dagur 4

Við rákum inn ærnar sem voru norðan við fjárhúsin

og í þeim hóp voru 20 ær sem áttu eftir að fá 

snyrtingu. Við klipptum þær og núna eigum við

bara eftir að klippa 3 ær. Þær fá snyrtingu þegar 

við keyrum á fjall. Algjör snilld að vera búin að

þessu

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

07.06.2026 17:38

Klaufsnyrting, dagur 3

Það var stór dagur í klaufsnyrtingu í dag. Bara 23 ær eftir.

Við vorum með góðan og hraustan mann með okkur (Gest).

Vá hvað það verður gott þegar við förum svo að keyra á

fjall um miðjan mánuðinn, að þurfa ekki að klippa klaufir þá.

Við getum þá farið fleiri ferðir á dag smiley

 

Við ætlum að reka inn á morgun og vonandi koma þær

sem eiga eftir að fá snyrtingu

 

Nafna mín, duglega og góða, fór heim í dag. 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

06.06.2026 17:04

Klaufsnyrting, dagur 2

Við klipptum klaufir á 23 kindum í morgun. Þetta gengur

svakalega vel hjá okkur. Þarna má sjá forysturnar okkar. Þær

fengu klaufsnyrtingu í morgun. Við ætlum að halda áfram á

morgun smiley

Nafna mín kom í gær og ætlar að gista tvær nætur hjá 

ömmu og afa

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

05.06.2026 14:22

Klaufsnyrting, dagur 1

Við klipptum klaufir á 22 kindum í morgun. Það er ekki séns

að klippa klaufirnar á þeim áður en þær fara út á vorin, því

þær eru svo grjótharðar. Þegar þær eru búnar að vera úti,

þá verða þær mýkri og ekkert mál að klippa þær. Það er bara

vika síðan Þórður var í aðgerð á hendinni og hann klippti

klaufir á móti mér. Hann er jaxl þessi elska heart Við vorum

líka með einn öflugan (Damian) sem hjálpaði mér að setja

kindurnar í stólinn. Við ætlum að taka nokkrar kindur á 

morgun. Það verður gott að vera búin að þessu þegar við

förum að keyra þær í fríið sitt

 

 

 

 

 

Molinn kveður 

 

 

04.06.2026 16:27

Skólaslit Þelamerkurskóla

4. bekkur að útskrifast

7. bekkur að útskrifast

Ooohh þessi drengur okkar. Hann fékk framfaraverðlaun

og átti það svo sannarlega skilið elsku gull

Hann fékk sko bikar

 

Þelamerkurleikarnir voru í gær

Alexander fékk medalíu fyrir spretthlaup

 

Víkingur fékk 5 medalíur

 

 

 

 

Fottir strákarnir okkar heart

Svo fékk Víkingur bók í verðlaun fyrir að velja bók

Svona lítur hendin á Þórði út í dag. Lítur mjög vel út og 

þónokkuð betur en saumurinn á hinni hendinni var

 

Það er búið að dæma bílinn okkar ónýtan. Tryggingarnar

ætla að kaupa hann af okkur

 

 

 

Við erum svo heppin að þeir sluppu algjörlega úr þessu

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 
 

03.06.2026 16:09

Lömbin eru að flýta sér að stækka

22-018 Kópelía með hrút og gimbur undan 25-738 Max.

Hrúturinn er með T137, en það er ekki komin greining á

gimbrina

Flottu arfhreinu T137 systurnar undan 24-076 Rist og

24-736 Lúða. Þær eru mjög samrýmdar

Maríuerla

Víkingur spilaði á skólaslitum tónlistarskólanum, í Hlíðarbæ

3. og 4. bekkur Þelamerkurskóla

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

02.06.2026 16:58

Fjórhjólaferð niður á engi

Við fórum smá rúnt niður á engi

Og meðal annars, fengum við okkur að drekka. Það er 

nauðsynlegt smiley

Það voru nokkrar svona holur í kantinum. Við vitum ekki

hvers vegna, en vorum að giska á að fuglar hafi krafsað 

þarna þessar holur

Ein holan

Verið að skoða steina til að taka heim og mála

Það voru margir Hettumáfar sem voru við tjörnina. Held

að þeir hafi verið með hreiður þar

Lómapar á tjörninni

Lóa

Tjaldur

Æðarfugl, Bliki

Jaðraka

Jaðraka

Gimbur undan 23-050 Baddý og 25-740 Þræði. Hún er með

R171 og N138

Hrútur undan 19-460 Larisu og 24-735 Fenox. Hann er með

R171

Hrútur og gimbur undan 24-055 Porru og 24-733 Púka. Það

á eftir að greina hrútinn, en gimbrin er með T137 og N138.

Gimbrin er hægra megin.

Lilla litla. Hún er undan 24-060 Mæju og 24-733 Púka. Það

á eftir að greina hana

Gimbur undan 20-498 Hriflu og 25-745 Aragon. Hún er með

R171

Hrútur undan 24-076 Rist og 25-738 Max. Hann er arfhreinn

T137

23-030 Þáma með hrúta undan 24-733 Púka. Við eigum 

eftir að fá greininguna þeirra

24-057 Kempa með hrúta undan 24-733 Púka. Þessi vinstra

megin er kominn með greiningu og er með T137. Við eigum

eftir að fá úr hinum

25-093 Salka með gimbur undan 25-740 Þræði. Hún er með

H154

Hrútur undan 20-510 Tindru og 24-735 Fenox. Hann er með

V136 sem er ekki gott

Hrútar undan 24-059 Fregn og 24-740 Þræði. Þessi hægra

megin er með C151 og við eigum eftir að fá greiningu úr

hinum

Hrútur og gimbur undan 23-053 Lúpínu og 24-731 Galsa.

Við eigum eftir að fá greiningu úr hrútnum, en gimbrin er 

bæði með T137 og R171

Hrútur undan 25-094 Fless og 25-741 Mjalla. Hann er með

R171

Hrútur undan 24-070 Másu og 24-731 Galsa. Hann er með

R171

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

01.06.2026 16:52

Arfgerðarsýni

Við fengum mörg sýni úr arfgreiningu í morgun. Við eigum

samt eftir að fá eitthvað um 60 sýni. Núna eins og staðan 

er, þá erum við með

9 arfhrein T137

1 arfhreint R171

5 sem eru bæði með R171 og T137

36 sem eru með R171. 5 af þessum 36 eru líka með N138

og 3 af þessum 36 eru líka með H154

13 sem eru með T137. 3 af þessum 13 eru líka með N138

og eitt af þessum 13 er með C151

14 eru með N138. 2 af þessum 14 eru líka með H154

4 eru með H154 

og svo er 1 með C151

 

Þetta á svo eftir að breytast þegar við fáum fleiri sýni úr

greiningu

 

Mér varð að ósk minni. Þessir eru báðir arfhreinir T137

Þeir eru undan 22-013 Vanadís og 24-733 Púka

Gimbur undan 24-068 Sissu og 25-745 Aragon. Hún er bæði

með T137 og R171. Ekki skemmtilegur litur á henni

Hrútur undan 22-019 Krukku og 25-738 Max. Hann er með

T137 og er fjórlembingur

Hrútur undan 24-077 Rentu og 25-738 Max. Hann er með

T137

Gimbur á móti undan Rentu og Max. Hún er arfhrein T137.

Svo spennandi tími núna. Ég var svo spennt í gærkvöld eftir

þetta, að ég gat varla sofnað

 

Ég á eftir að setja inn myndir af arfgerðarlömbum næstu 

daga

 

 

 
 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

14 ár

10 mánuði

2 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

4 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

4 ár

6 mánuði

2 daga

Tenglar

Eldra efni