Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1287
Gestir í dag: 46
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1158289
Samtals gestir: 63356
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 05:28:46

28.01.2024 18:36

Útivera

Við fórum í göngin í dag. Þeir geta alltaf leikið sér þar

Það voru tveir byssuóðir drengir með okkur. Þeir skutu 

risaeðlur (að þeirra sögn) og fleiri dýr

Umkringdur kindum. Það voru fleiri kindur sem vildu klapp

frá honum, ég náði bara ekki mynd af því. Honum fannst

þetta ekki leiðinlegt

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

27.01.2024 19:05

Heimsókn í fjárhúsin

Vinnumaðurinn mættur í sveitina

Maxímus fær gott klapp

Að hjálpa til

Ömmu og afa gullmoli mættur. Hann valdi sér Maxímus og

hér fær hann klapp frá honum

 

Og nafna mín, þessi fallegi gullmoli kom líka í fjárhúsin með

mömmu sinni og bróður

Nafna mín að skoða kindurnar og gefa þeim brauð

Ég gerði tvo hrúta gæfa í dag, Dúdda og Valver. Hér er Dúddi

í dekri

 

Og Valver

Ég fór í Lystigarðinn í dag og sá aðeins einn fugl, þennan

Gráþröst

 

 

Veðrið var ekkert sérstakt í dag. Fuglarnir komu í mat eins og

alla daga

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

26.01.2024 17:35

Fullt tungl

Í gær var fullt tungl. Ég tók þessa mynd núna í kvöld

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

25.01.2024 18:57

Kindurnar okkar

Monsa litla að fylgjast með mér

Hún kemst ekki upp í garðann núna

Þessi móflekkótta, stökk yfir til hrútana í gær smiley

Féð hefur það gott í rokinu sem var í dag

Það er komin mikil ull á kindurnar

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

24.01.2024 19:10

Monsa litla

Tunglið í morgun, í vestur

Þessi litla, Monsa, fór alltaf hálf upp í garðann þegar hún var

að éta. Hún endaði stundum á því að fara alla leið. Það var

ekki gott

Við ákváðum að láta hana í sér stíu, þar sem hún getur ekki 

farið upp í garðann. Það fékk ein lítil að vera með henni svo

hún yrði ekki ein

Þær eru þarna. Við settum grind yfir spilið sem er á milli 

þeirra og hrútana svo þau gætu ekki farið á milli

Þessi móflekkótta, Lúpína, var komin yfir til hrútana í morgun.

Hún er líklegast að ganga og hefur stokkið yfir til þeirra. Nú er

spurning hvort hún komi með lamb/lömb 15. júní. Vonandi

er hún bara geld. En halló, þetta er dágóð hæð fyrir hana surprise

 

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

23.01.2024 20:39

Flottur Damian

Ég var að skoða gamlar myndir og þá meðal annars þessar.

Þessi flotti drengur kom til okkar 1. júlí 2015, þá 6 ára gamall.

Hann er búinn að vera einn af okkur í tæp 9 ár. Það hefur

aðeins tognað úr honum heart Vá hvað þessi góði tími er fljótur

að líða heart

05.07.2015

05.07.2015

12.07.2015

18.08.2015

07.09.2015

07.09.2015

26.10.2015

04.11.2015

19.11.2015

20.12.2023

17.12.2023

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

22.01.2024 19:12

Fuglar

Enn koma fuglarnir í garðinn hjá okkur. Gaman að fylgjast

með þeim. Ég get verið í eins til tveggja metra fjarlægð. Þeir

eru orðnir svo gæfir

 

 

 

 

 

 

Matartími

Ein gimbur (smálamb) fer alltaf hálf upp í garðann. Stundum

endar hún upp í garðanum en bara stundum smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

21.01.2024 18:40

95 ára höfðingi

Þessi höfðingi verður 95 ára á morgun. Af því tilefni var fólki

boðið í flottar veitingar í Ólafsfirði í dag

 

 

 

 

Þeir bræður hjá skírnarfontinum sem afi þeirra, Þórður gerði

Svarfaðardalur í dag

 

Ég setti nokkrar myndir inn í myndaalbúmið, frá deginum í dag

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

20.01.2024 18:42

Afmælisdrottning hún mamma mín

Þetta er hún mamma mín. Hún á afmæli í dag. Hún bauð 

afkomendum í kaffi, í tilefni dagsins. Til hamingju með

afmælið elsku mamma

Og auðvitað tók pabbi í nikkuna og tók nokkur lög

 

 

 

 

 

Það voru ekkert smá veitingar

 

 

 

Takk fyrir samveruna, þið öll sem mættuð

 

 

Damian í æfingarakstri

 

 

 
 

 

Molinn kveður

 

 

19.01.2024 20:19

Burðardagar

Svona lítur sauðburðurinn út í vor, burðardagar

22. apríl 1 ær

23. apríl 22 ær

24. apríl 5 ær

25. apríl 9 ær

26. apríl 9 ær

27. apríl 10 ær

28. apríl 9 ær

29. apríl 5 ær

30. apríl 7 ær

01. maí 6 ær

02. maí 4 ær

03. maí 3 ær

04 maí 3 ær

05 maí 3 ær

06. maí 5 ær

07. maí 11 ær

08. maí 3 ær

09. maí 2 ær

10. maí 5 ær

18. maí 1 ær

30. maí 2 ær

Svo er ein ær sem er ekki með dagsetningu

Alls 126 ær

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

18.01.2024 18:44

Kalt í dag

Nú er stutt í sólina, já eða kannski sást hún alveg í dag. Ég er

ekki viss. En á morgun eða hinn ætti hún að sjást alveg

Það er búið að vera frekar kalt í dag. Það fór í -20,8 gráður

hér á Möðruvöllum

Við fórum til Akureyrar um fjögur í dag og þar var -20 stig. 

Þetta er bara eins og vera ofaní frystikistu

En fallegt var veðrið í dag

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

17.01.2024 19:39

Síðan mín, loksins komin í lag

Síðan mín er búin að vera biluð síðan 12. janúar. Loksins 

hægt að setja inn blogg smiley

Veðurbarinn kofinn eftir gærdaginn og nóttina

Ég fór og gaf fuglunum. Allt snjóbarið í dag

Ég gaf þeim líka vatn og þeir voru ánægðir með það

Það voru margir sem fóru og fengu sér að drekka

Þessar myndir eru ekki mjög skýrar, því ég tók þær út um

stofugluggann

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

16.01.2024 19:13

Vont veður í dag

Veðrið var frekar slæmt í dag. Fuglarnir voru margir sem

komu í matinn og þeir slógust um hann. Þessar myndir tók 

ég inni í stofu. Þeir komu í gluggahúsið og slógust um það

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Loksins kom veturinn, en hann var bara einn sólahring. Þórður

fór í bæinn í kvöld, til að ná í Damian og hann var klukkutíma

í ferðinni, sem hefði átt að taka hálftíma. Það var svo vont

veður og lítið hægt að sjá

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

15.01.2024 19:49

Hrútarnir teknir úr ánum

Við tókum hrútana úr fénu á laugardaginn, 13. janúar. Þarna

er Maxímus að flýta sér til mín til að fá klapp

Og klappið fær hann

Hann er svo svakalega gæfur

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

14.01.2024 19:35

Afmælisgullmoli

Þessi fallega og góða nafna mín er tveggja ára í dag. Það sem

tíminn líður hratt. Ég man að ég var með strákana á skíðum

í Hlíðarfjalli þennan dag fyrir tveim árum og var alltaf að kíkja

á símann og athuga hvort ég væri búin að fá skilaboð um að 

hún væri fædd heart

Sjá þessa elsku heart

Svo falleg

 

Damian er duglegur að mæta á skákæfingar og skákmót

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

10 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

6 mánuði

13 daga

Tenglar