Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1199
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1158201
Samtals gestir: 63339
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 04:20:52

27.05.2024 14:22

Krummi

Ég hef verið að gefa krumma matarafganga og hef hent þeim

út um eldhúsgluggann. Það er alveg merkilegt, að hann hefur

þorað að koma og fá sér bita. Ég setti myndavélina út, sem var

í fjárhúsunum, og gat fylgst með krumma fá sér bita. Hann

já eða þeir, því ég held að þeir hafi verið tveir, komu margar

ferðir

19-444 Höpp með hrút og gimbur undan 23-724 Arró

Hrútur og gimbur undan 18-403 Læpu og 23-724 Arró

Hrútur og gimbur undan 20-521 Offu og 23-722 Brútusi

Hrútur og gimbur undan 19-469 Æðey og 23-722 Brútusi

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

26.05.2024 17:56

Falleg gjöf

Þessi ömmu gullmoli smíðaði þetta í skólanum og gaf mér. 

Þetta er matardallur fyrir fuglana

Við fórum út í garð og settum þetta upp þar

Snillingur að búa þetta til og gefa ömmu sinni. Takk Haukur

Nói minn heart

Það eru fuglar í garðinum okkar. Maríuerla hefur valið þetta

fuglahús, gert hreiður og verpt

Ef vel er að gáð, þá sést Maríuerlan þarna inni

Hún sést þarna þar sem ég er búin að lýsa myndina

Hreiðrið hennar

Þessir hrútar eru undan 21-009 Valíu og 23-722 Brútusi. Þau

eru bæði með arfgerðina T137. Þessir hrútar gætu verið 

arfhreinir T137. Við erum búin að senda frá okkur öll sýnin.

Við tókum sýni úr öllum lömbunum. Nú bíðum við spennt

eftir útkomunni úr arfgerðarsýnunum

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

25.05.2024 16:13

Gullmolarnir mínir

Ég náði þriðju myndinni í dag. Nú á ég myndir af öllum

gullunum mínum, á háhest á ömmu. Þau eru öll tveggja

ára á árinu sem myndin var tekin heart

Júní 2013 Einar Breki

Júlí 2016 Haukur Nói

Maí 2024 Birgitta Ósk

Við fórum í sund á Þeló í dag, ís og hopp á eftir sundinu

Hopp og skopp heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

24.05.2024 16:59

Grillmatur

Við Þórður grilluðum okkur sneiðar í hádeginu. Mikið svakalega

er þetta gott. Við vorum bara tvö í mat, þannig að það var

afgangur

Þessir fallegu ömmu og afa gullmolar komu í dag og ætla að

gista í tvær nætur heart

Og auðvitað náði amma í jafnvægishjólið fyrir nöfnu sína

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

23.05.2024 15:13

Myndataka hafin

Nú er myndataka af lömbunum hafin. Ég ætla að reyna að 

taka mynd af öllum lömbunum áður en þau fara á fjall

Hrútur og gimbur undan 23-045 Anímóu og 23-726 Pixa. Þau

ganga bæði undir Anímóu

Hrútar undan 23-051 Skyssu og 23-726 Pixa. Þeir ganga 

báðir undir Skyssu

Gimbur undan 19-444 Höpp og 23-724 Arró

18-409 Elíza með hrút og gimbur undan 23-727 Maxímus.

Forystufé smiley

Hrúturinn

Og gimbrin

Gimbur undan 20-521 Offu og 23-722 Brútusi

17-330 Stássa með gimbur og hrút undan 23-720 Valver

Enn gefum við hey

20-518 Sæla með tvo hrúta og eina gimbur undan 23-720 

Valver

22-102 Haddý

Þórður fór í girðingarvinnu í gær. Fjallsgirðing

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

22.05.2024 13:27

Þyrluflug

Oggi bróðir Þórðar er sjötugur í dag. Áslaug og börnin þeirra

gáfu honum þyrluflug í afmælisgjöf. Hún bauð okkur og

Simma með og vá hvað þetta var gaman

Við flugum um allt þarna framfrá

Við nánast settumst á Drangann og hringsóluðum um hann

Myrkárbakki og Myrká

 

 

Myrká

Mjög gaman. Til hamingju Oggi og Áslaug með daginn og

takk fyrir okkur heartheartheartheartheart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

21.05.2024 18:07

Nafna mín í heimsókn

Þessir ömmu og afa gullmolar komu í heimsókn í dag til að

kíkja á lömbin

Nafna mín og bróðir hennar

Ég held að þetta fuglahús verði notað í sumar. Ég sá

Maríuerlu koma út úr þessu. Vonandi verpir hún þarna

Þetta er inní húsinu. Mér sýnist vera komið hreiður þarna smiley

Maríuerlan sem var inni í húsinu

Auðnutittlingur að tína upp fræin sem komu undan snjónum

Með sólblómafræ í gogginum

 

Við settum tvær lambær út í dag og þá eru þrjár inni. Þær

fara út á morgun

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

20.05.2024 16:37

Ærnar fóru út í dag

Það var nú ekki eins vont veðrið hér og það átti að vera. Við

vorum heppnari en aðrir. Það snjóaði samt aðeins, en ekki

mikið

Klaki á þakinu og örlítill snjór

Það snjóaði smá í fjöllin

Við erum búin að vera með ærnar inni síðan á laugardag, en

þær fengu að fara út í dag. Við flokkuðum þær þegar við 

settum út. Þrílemburnar og tvílembdu gemlingarnir fóru á

nýræktina og fengu rúllu þar. Hinar fóru bara út og geta 

farið um allt

Nú eru fjárhúsin tóm, en það eru 5 lambær inn í hlöðu. Við

setjum kannski einhverjar af þeim út á morgun

Þrílemburnar og tvílembdu gemlingarnir að fara á nýræktina.

Við erum með 25 ær sem ganga með þrjú lömb og 5 gemlinga

sem ganga með tvö lömb

Hér var góður matur í tilefni sauðburðarloka

Betra getur það varla verið

 

Ég svaf vel í alla nótt. Gott að geta sofið í einum dúr smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

19.05.2024 18:21

Sauðburði lokið þar til í júlí

Við erum með lambærnar inni ennþá. Þær fara út á morgun.

Veðrið hefur ekki verið mjög slæmt, en það er kalt og bleyta.

Það snjóaði í dag, en festi ekki, varð bara að bleytu

Það er fjör í görðunum. Nánast öll lömbin upp í þeim að fá

sér að éta með mömmunum

Vinnumennirnir okkar að brynna lömbunum

Þau eru farin að drekka vatn

Pása í fjárhúsunum og þá eru það kubbarnir

Ég er búin að fylgjast með þessari síðustu í allan dag og

vonast til að hún beri fyrir nóttina.

28 dagar/nætur á vakt og aldrei sofið meira en tvo tíma

í einu og ekki lagt mig á daginn. Ég veit að þetta er ekki holt,

en ég hef haldið þetta út meðvituð um að þetta er mánaðar

tímabil sem gengur yfir

Meðan ég beið og vonaði að hún bæri, ákvað ég að baka

vöfflur. Þegar við fórum svo að gefa fénu seinni gjöfina, þá

var hún byrjuð

Sauðburði lauk svo um hálf átta í kvöld. Já eða lauk í bili.

Hann byrjar aftur í júlí

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

18.05.2024 19:27

Allt féð komið inn

Við tókum ákvörðun í morgun að setja allar lambærnar inn.

Það á að vera svo leiðinlegt veðrið á morgun að okkur fannst

ekki annað koma til greina

Við vorum í allan dag að þessu, að vísu tókum við pásu og

fórum til Ólafsfjarðar í fermingarveislu

Þetta gekk alveg svakalega vel

 

Það er ein óborin og vonandi fer hún að klára þetta. Ég svaf

heima síðustu nótt og ætla að sofa heima áfram. Kíki bara í

símann, á myndavélina, á tveggja tíma fresti

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

17.05.2024 17:02

Tvær eftir

Síðasti gemlingurinn bar í dag. Þetta er 23-029 Valný og hún

kom með gimbur undan 23-723 Ratipong

Þetta er stór og mikil gimbur. Mér finnst sauðburður bara

vera búinn þegar gemlingarnir eru búnir að bera

Við gefum á garðana inni í fjárhúsum og höfum opið fyrir

ærnar. Það eru alltaf nokkrar inni að fá sér að éta. Þær hafa

samt nóg hey úti. Þetta er 23-049 Hekla með gimbrar undan

23-726 Pixa. Þær dafna vel hjá henni

Nú eru 2 eftir að bera

 

Ég er búin að sofa í fjárhúsunum síðan 21. apríl og aldrei 

meira en tvo tíma í einu. Núna ætla ég að sofa heima eftir

26 nætur hjá kindunum. Ég ætla samt að vakna á tveggja 

tíma fresti og kíkja á  myndavélina og athuga með þessar 

tvær

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

16.05.2024 15:48

Áburður borinn á túnin

Við fengum verktaka til að bera áburð á túnin. Það var borið

á allt hér heima og líka niður á engi

Þórður færir kindunum heyrúllu

17-346 Pota með hrút og gimbur undan 23-724 Arró. Þriðja

lambið, gimbur fór undir 22-109 Ágústu. Þau eru í algjörri

afslöppun

Jaðrakan

17-330 Stássa með hrút og gimbur undan 23-720 Valver

15-215 Þerna með hrút og gimbur undan 23-722 Brútusi

Stugga við fénu áður en borið verður á túnið, um hálf sjö í

kvöld

 

4 ær eftir. Þetta mjakast

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

15.05.2024 17:13

Aftur gott veður í dag

22-022 Skúta

Þeim líður vel í sólinni. Þrílembingar undan 16-291 Rakel og

23-721 Fastusi

Lömbin eru farin að drekka vatn

Þau eru mörg sem koma við hjá vatnsfötunum og fá sér

vatn. Þetta eru þrílembingar undan 18-431 Skeið og 

23-720 Valver

 

Enn eru 5 eftir

 

 
 
 

 

Molinn kveður

 

 

14.05.2024 18:03

Gott veður í dag

Það komu margar kindur inn, eftir að við opnuðum fjárhúsin.

Þær voru í miklu rápi, inn og út

18-408 Elín með tvo hrúta og eina gimbur undan

23-721 Fastusi. Það eru eitthvað á þriðja tug, sem ganga

með þrjú

23-044 Eyvör er búin að finna mömmu sína. Hér er hún með

henni og systkinum sínum. Eyvör var höfð geld 

18-409 Elíza með hrút og gimbur undan 23-727 Maxímus og

Eyvör er þarna með henni

Góður dagur í dag. Sól og blíða

 

Bráðum verða 5 eftir, því það er einn gemlingur (með eitt),

að bera

 

Vonandi fer sauðburði að ljúka. Það eru tveir gemlingar

eftir, báðir með eitt og 3 fullorðnar ær, ein með þrjú og tvær

með tvö

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

13.05.2024 13:39

Kalt vor

Það verður kalt og rigning næstu nótt og nú erum við búin

að opna fyrir lambærnar, bæði að norðan og sunnan. Þær

komast inn og geta fengið sér hey og vatn inni. Það er gott

að vita að þær geti komið sér inn í hlýjuna

Það er búið að vera frekar kalt í dag og þannig á það að

vera í nótt

Þau bera sig samt vel, bæði lömb og ær. Ég veit ekki hvenær

er von á hita, til að það fari að grænka. Við gefum hey út á

meðan það grænkar ekki

 

6 ær eftir að bera smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

10 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

6 mánuði

13 daga

Tenglar