Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1530
Gestir í dag: 85
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 1158532
Samtals gestir: 63395
Tölur uppfærðar: 27.7.2024 09:23:57

12.05.2024 17:31

Þoka í nótt

Þoka í nótt. Þessi mynd er tekin kl. 05

Vinnumaðurinn mætti í morgun og hér er hann að fylgjast

með nýfæddu lambi

Og í fjárhús-pásunum var verið að leika sér í kubbum

Mæðgur komu í heimsókn í fjárhúsin heart

7 eftir og komin eitthvað á þriðjahundruð lömb

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

11.05.2024 15:20

Enn eru það kindur og lömb

22-019 Krukka með fjórlembingana. Gengur með þau þrjú.

Þau eru undan 23-726 Pixa

Stokkandapar

Hrútur undan 19-451 Kubbu og 23-722 Brútusi

Ekki veitir af að hafa nóg hey handa þeim, því það grænkar

hægt

Lömbin éta líka

Gimbur undan 22-012 Gormu og 23-725 Dúdda

Jaðrakan

Skeið með þrjú

Gott heyið

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

10.05.2024 17:53

Margar þrílembur komnar út

18-431 Skeið með tvo hrúta og eina gimbur og þau eru

undan 23-720 Valver

 

18-438 Skræpa með hrút og gimbur sem fæddust risar, og

þau eru undan 23-721 Fastusi

16-291 Rakel með tvær gimbrar og einn hrút og þau eru 

undan 23-721 Fastusi

18-393 Klanka með tvær gimbrar og einn hrút,

undan 23-722 Brútus

Lömbin undan Klönku

17-312 Flegða með hrút undan 23-721 Fastusi og gimbur

(sem vanin var undir hana) undan 20-504 Myrju og

23-722 Brútusi

20-506 Marey með tvo hrúta og eina gimbur undan 

23-725 Dúdda

Gimbur undan 20-504 Myrju og 23-722 Brútusi

 

205 lömb og 13 ær eftir

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

09.05.2024 16:10

195 lömb

Við fengum þennan vinnumann í dag til okkar. Hér er hann

að færa Þórði lamb til að marka

Við fórum út á tún og Búbba kom til okkar til að fá klapp og

brauð

Nú eru 18 eftir og komin 195 lömb. Þetta smá mjakast

Við mörkuðum öll lömbin sem voru ómörkuð og nú eru þau

195. Þetta fæddist í morgun

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

08.05.2024 12:55

20 ær eftir

Þessar lambær eru búnar að vera úti síðan 1. maí. Þær hafa

verið í fjárhúshólfinu þar til í dag, þá rákum við þær norður

á tún. Túnið fyrir norðan fjárhúsin og ofan og norðan við

íbúðarhúsin

Þar eru þær með aðgang að rúllu og vatni

Það fer vel um þær þar. Þær geta farið í skjól, í skógarreitnum

sem er á túninu

Við settum nýjan hóp út í fjárhúshólfið. Þær voru fegnar að

komast út

Nú eru fjárhúsin að verða tóm. Bara óbornu ærnar eftir og

nokkrar lambær

Nú fer vaktinni að ljúka. Bara 20 ær eftir og komin 191 lömb

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

07.05.2024 17:39

Kindur og lömb

Alltaf matatími hjá kindunum

Þær taka vel í saltsteinana og lömbin líka

 

 

Forystuhrútur undan Elízu

Og gimbrin á móti

Lömbin skemmtu sér vel á meðan mæðurnar voru í mat

Hoppa og skoppa

 

 

Og stangast. Það fer vel um þau úti

 

25 ær eftir og komin 180 lömb

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

06.05.2024 15:34

Sauðburður

Vinnufólkið okkar í dag

Verið að brynna kindunum

Þórður að setja rúllu út. Það veitir ekki af að hafa nóg hey

úti handa kindunum. Það er ekki komið grænt strá

Þær ganga vel í heyið

Og lömbin líka

 

Gimbur undan 18-426 Mariku og 23-722 Brútusi

Gimbur undan 22-021 Kotru og 23-721 Fastusi

 

 

 

Svo flott listaverk hjá Alexander. Hann raðaði steinunum

svona saman og teiknaði á þá. Hann er snillingur

Jaðrakan mætt og þarna má líka sjá randaflugu. Ég held að 

hún hafi verið að pirra fuglinn

 

Það bar bara ein í dag og lömbin eru 172 og 29 ær eftir

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

 

05.05.2024 17:48

170 lömb

Þessi flotta stúlka er að raða lamba merkjum á spjaldið. Hún 

er búin að vera dugleg að hjálpa okkur

Við erum búin að marka og merkja 159 lömb

Núna eru 30 ær eftir að bera og komin 170 lömb

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

04.05.2024 18:35

Sauðburður

Þær systur, mamma og Ása komu í heimsókn í fjárhúsin í

dag. Gaman að fá þær í heimsókn heart

Búbba að fá klapp

Það er ekki komið grænt strá úti en kindurnar borða bara

nóg af góðu heyi

23-051 Skyssa með hrúta undan 23-726 Pixa

Hrútur og gimbur undan 20-504 Myrju og 23-722 Brútus

22-109 Ágústa með gimbur undan 23-722 Brútusi og gimbur

undan 17-346 Potu og 23-724 Arró

Gimbur undan Potu og Arró

Hrútur undan 21-009 Valíu og 23-722 Brútus

Gimbur undan 20-511 Dís og 23-724 Arró

 

Það eru komin 163 lömb og 34 ær eftir að bera 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

 

03.05.2024 19:18

Gorma litla

Þetta er hún Gorma litla, í apríl 2022. Hún er fæddur 

fimmlembingur

Núna tveimur árum seinna, er hún orðin mamma

Hún er alsæl með lömbin sín

Falleg gimbur undan Gormu

Og hrútur undan Gormu

Sauðburður mjakast áfram. Nú eru 40 eftir að bera

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

02.05.2024 18:10

Kindur og lömb

Elíza er svo ánægð að vera komin út

Lömbin hennar Elízu

Þau eru farin að éta hey

Og líður vel úti

Falleg móflekkótt gimbur. Ég held að þetta sé fyrsta

móflekkótta lambið sem fæðist

Kl. 7 í morgun

Og kl. 7 í kvöld

Skógarþröstur að leita að hreiðurstað

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

01.05.2024 18:27

Þelamerkurskóli kom sá og sigraði

Þelamerkurskóli, kom sá og sigraði sinn riðil í Skólahreysti,

í gær og er á leiðinni í úrslit í Laugardalshöll 25. maí

Okkar maður tók upphýfingar og dýfur. Við erum mjög 

stolt af honum heart

Við settum fyrstu lambærnar út í morgun

Elíza var fegin að komast út

 

 

Við settum á milli 30 og 40 lambær út og ætlum að hafa þær

úti

Strákarnir léku sér úti í góða veðrinu

Þeir voru að mála á steina

Við eigum silfurbrúðkaup í dag (25 ár) og erum alltaf jafn

ástfangin  heart

Ruv kom í heimsókn í dag og tók myndir af kindunum

 

Og ég lenti í viðtali

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

30.04.2024 18:27

Geldféð fór út í dag

Við settum geldféð út í dag. Hrútarnir eru þarna, í hólfi við

gömlu fjárhúsin, (Möðruvelli 1)

Geldféð

 

Þær fóru í rjómahólfið. Þar fá þær heyrúllu og vatn

Núna eru eitthvað um 60 ær eftir að bera. Þær eru í þessum

tveim króm

Þetta par kom í kvöld og líklegast að leita sér af hreiðurstað

Karrinn er alveg hvítur ennþá. Kerlingin farin að dökkna

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

29.04.2024 18:51

Rétt rúmlega 100 lömb

Nú eru komin rétt yfir 100 lömb. Sauðburður hefur gengið

vel hingað til

Þessi litlu grey eru að bíða eftir að fá mömmu. Það var samt

merkilegt með þau þrjú, að það var ekki hægt að gefa þeim

úr pela, heldur þurfti ég að gefa þeim með magaslöngu. Við

vöndum eitt þeirra undir í dag. Það var alveg magnað með það,

að lambið fór undir og saug af krafti. Það hafði aldrei farið 

undir á til að sjúga. Vildi ekki pela, en fann strax spena.

Svolítið sérstakt. Nú eru þau þrjú að bíða eftir mömmu

Þessi ömmu og afa gullmoli er búinn að vera duglegur á

vaktinni. Hér er hann að gá hvort einhver sé að bera

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

28.04.2024 20:21

Um 90 lömb

Þórður að moka snjó, svo við getum farið að setja út í

fjárhúshólfið

Eins og sést er girðingin í kafi í snjó

 

Verið að marka

Nafna mín kom í heimsókn í fjárhúsin. Hún var ekki hrædd 

við kindurnar. Vildi bara fara ofan í króna

Við að spjalla

Hún settist ofan i lambastíuna (lítið kar) og leyfði lömbunum

að narta í sig

Frændsystkinin (ömmu og afa gull) að gefa litlu lömbunum

 

Það er frekar rólegt. Komin eitthvað um 90 lömb

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

10 mánuði

13 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

10 ár

15 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

6 mánuði

13 daga

Tenglar